Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 50

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 50
félagsins sé hinn sami og fyrr, þó a3 verkefnin hafi aukist og féiagsstörfin grípi æ meira inn í hin ýmsu málefni félagsmanna. Félagsmenn eru nú 30 að tölu, eða allir starfandi rannsóknarlögreglumenn í Reykjavík. Það hefur frá fyrstu tíð verið snar þáttur í starfi félagsins að fá hina fær- ustu menn, hvern á sínu sviði, til að flyta erindi á fundum um hin ýmsu vandamál, er snerta störf rannsóknarlögreglumanna. Skal hér getið nokk- urra þeirra: Valdimar Stefánsson fyrrv. saksóknari rikisins. Umræðuefni: Skipulag og starfshættir innan stofnunarinnar. Þórður Björnsson saksóknari ríkisins, um tékkasvik o. fl. Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari, um fjársvikamál. Þórður Möíler yfirlæknir, um fíknilyf. Jón A. Ólafsson sakadómari, um mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. Sverrir Einarsson sakadómari, um auðgunarbrot. Hallvarður Einvarðsson aðalfulltrúi, um sakamálarannsóknir. Þórir Oddsson fulltrúi, um sönnun og sönnunargögn. Tómas Einarsson kennari, um skólamál. Eitt af þeim verkefnum, sem félagið hefur á stefnuskrá sinni, er að stuðla að bættri aðstöðu rannsóknarlögreglumanna til að auka við þekkingu sína og að þeim verði gert fært að fara til annarra landa til náms í lögreglufræðum og til að kynnast starfsaðferðum þar. Það sem hefur háð framgangi þessa máls, er fyrst og fremst fjárskortur og of mikið vinnuálag. Fáeinir menn hafa þó fengið tækifæri til námsferða, og er óhætt að fullyrða, að það hafi orðið rannsóknarlögreglunni til mikils gagns. Rannsóknarlögreglumenn í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi hafa með sér félagsskap (Nordisk Kriminalpoliti Union, NKU) og að tilhlutan þess félags- skapar var Félagi rannsóknarlögreglumanna í Reykjavík í fyrsta sinn boðið að senda fulltrúa á 4 daga þing, sem haldið var í Helsingör í Danmörku í ágúst á s.l. sumri. Boðinu var tekið með þökkum og sótti þingið formaður félagsins. NKU hefur að aðalmarkmiði að stuðla að nánari tengslum á milli rannsóknarlögreglumanna á Norðurlöndum og að gefa lögreglumönnum tækifæri til að skiptast á skoðunum um hin ýmsu viðfangsefni í starfinu. Á þinginu var rætt um nauðsyn þess að efla samstarf rannsóknarlögreglumanna á öllum Norðurlöndum. Var m. a. fjallað um, hvort æksilegt væri að koma á fót samnorrænni rannsóknarlögreglu. Aðgerðir í sakamálum, er snertu eitt- hvert hinna Norðurlandanna, þyldu oft og tíðum enga bið og of seinlegt væri að fara með málin í gegnum hin þunglamalegu stjórnkerfi landanna. Það kom í Ijós á þessu móti NKU, að hin svokölluðu hvítflibba afbrot („white collar-forbrydelser“) eru sívaxandi vandamál. Er það mikið áhyggju- efni starfsbræðra okkar á hinum Norðurlöndunum, hvernig staðið skuli að því að mæta þeim vanda. Hið sama má segja um eiturlyfjamálin. Þau voru nokkuð rædd, og bar öllum saman um, að þróunin á því sviði væri ískyggileg og hvarvetna færu þau mjög vaxandi. Félag rannsóknarlögreglumanna í Reykjavík telur að með boði NKU hafi náðst mikilsverður áfangi, þar sem félaginu var gefinn kostur á aðild að samtökunum. Núverandi stjórn Félags rannsóknarlögreglumanna í Reykjavík skipa eft- irtaldir menn: Gísli Guðmundsson (formaður), Sævar Þ. Jóhannesson (ritari), Jónas 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.