Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 49
laun tollvarða kr. 287,50 á mánuði og mun lægri en flestra sambærilegra
starfshópa.
Tollvarðafélagið á aðild að Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, og hafa
félagsmenn ávallt bundið miklar vonir við þau samtök í hagsmunabaráttu sinni.
Unnið hefur verið að ýmsum fleiri málum en hér hafa verið talin, t. d. trygg-
ingamálum og orlofsmálum. Félagið á 2 orlofshús í Munaðarnesi. Meðal
menningarmála, sem félagið hefur sinnt, má nefna stofnun minjasafns, en
það er þegar til. Blaðið „Tolltíðindi" hefur verið gefið út síðustu 2 ár.
I stjórn tollvarðafélagsins eru nú: Zakarías Hjartarson (formaður), Sævin
Baldvinsson (ritari), Birgir Vigfússon (gjaldkeri) og Magnús Kristjánsson
(meðstjórnandi). I varastjórn eru: Gunnar Steindórsson, Jónas Hall Garðars-
s°n °9 Pétur V. Guðmundsson. Zakarías Hjartarson
FANGAVARÐAFÉLAG ÍSLANDS
Fangavarðafélag islands var stofnað 23. október 1973. Til stofnfundar var
boðað af undirbúningsnefnd, sem skipuð var tveimur fulltrúum starfsmanna
við þessi fangelsi: Vinnuhælið að Litla-Hrauni, hegningarhúsið við Skóla-
vörðustíg, fangelsið í Síðumúla og fangageymslu lögreglunnar við Hverfis-
götu. Á fundinum voru 32 fangaverðir og einnig formaður Starfsmannafélags
ríkisstofnana, Einar Ólafsson. Ríkti þar áhugi og eining. Alls teljast stofn-
endur félagsins vera 48.
Markmið félagsins er skv. 2. gr. laga þess að efla samvinnu og samstarf
félagsmanna og bæta hag þeirra, eftir því sem við verður komið. Tilgangi sín-
um hyggst félagið ná með því m. a.:
a) að vinna að því, að allir starfsmenn, sem til þess hafa rétt, séu íélags-
bundnir,
b) að fylgjast með því, að samningar séu haldnir og réttindi starfsmanna í
heiðri höfð og reynt að leysa þau ágreiningsmál, sem upp kunna að koma
og bundin eru við fangaverði,
c) að veita stjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana aðstoð við söfnun gagna
og upplýsinga og annað, er hún kann að óska eftir,
d) að efla gagnkvæman skilning og einingu og stuðla að fræðslu- og menn-
ingarstarfi meðal fangavarða.
Eftirtaldir menn voru kosnir í stjórn félagsins: Frímann Sigurðsson, Litla-
Hrauni (formaður), Haukur Níelsson, Skólavörðustíg 9 (varaformaður), Örn
Sigurðsson, Litla-Hrauni (meðstjórnandi). Varastjórn: Gunnar Kristinsson,
Skólavörðustíg 9, Gunnar Marinósson, Síðumúla. Haukur Níelsson
FÉLAG RANNSÓKNARLÖGREGLUMANNA
í REYKJAVÍK
Árið 1957 var stofnað Málfundafélag rannsóknarlögreglumanna. Tilgangur
félagsins var fyrst og fremst að stuðla að aukinni fræðslu, sem að gagni
mætti koma í starfi og utan þess. Seinna var heiti félagsins breytt og heitir
það nú Félag rannsóknarlögreglumanna í Reykjavík. Segja má, að tilgangur
47