Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 56
markmið. Það er aðili að alþjóðasamtökum slikra félaga, WFUNA í Genf, og
norrænu félögin hafa með sér samvinnu í formi upplýsingamiðlunar og árlegra
funda, svo sem áður er getið.
Félag Sameinuðu þjóðanna á íslandi var stofnað í apríl 1948. Það átti því
nýlega aldarfjórðungsafmæli. Fyrsti formaður þess var Ásgeir Ásgeirsson
fyrrum forseti. Aðrir formenn hafa verið Ólafur Jóhannesson, Jóhannes G.
Helgason rekstrarhagfræðingur, Ármann Snævarr, Gunnar Schram og nú
Jóhannes Elíasson, flestir lögfræðingar. Svo er og um ritara og/eða fram-
kvæmdastjóra þess, sem hafa verið Sigurður Bjarnason, Viihjálmur Árnason,
Jón Magnússon, Guðrún Erlendsdóttir, Bjarni Beinteinsson, Þorsteinn Ingólfs-
son og undirritaður laganemi, sem tók við því starfi um miðjan ágúst 1973.
Guðmundur S. Alfreðsson
SAMNINGAR B.S.R.B.
Tímarit lögfræðinga hefur farið þess á leit við undirritaðan að gera í ör-
stuttu máli grein fyrir helstu þáttum kjarasamnings Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja (BSRB) og fjármálaráðherra, sem undirritaður var hinn 15.
desember s.l. Áður en komið er að einstökum efnisatriðum samningsins er
rétt að geta aðdraganda hans.
Með lögum nr. 46/1973 var gerð sú grundvallarbreyting á samningsrétti
opinberra starfsmanna, að í stað þess að BSRB færi eitt með samningsrétt-
inn var heildarsamtökum þeim, sem fjármálaráðherra veitir viðurkenningu,
veittur samningsréttur. Tvö heildarsamtök hafa nú fengið slíka viðurkenn-
ingu fjármálaráðherra, þ. e. BSRB og Bandalag háskólamanna (BHM). Sú
meginbreyting var einnig gerð með framangreindum lögum, að heildarsam-
tökin gera aðalkjarasamning, eins konar rammasamning, þar sem kveðið er
á um meginreglur til viðmiðunar um skipun í launaflokka, föst laun, vinnu-
tíma, laun fyrir yfirvinnu, orlof og ferðakostnað, sbr. 5. grein. Þegar aðal-
kjarasamningur hefur verið gerður, koma til einstök aðildarfélög heildarsam-
takanna, sem skulu semja um skipan starfsheita og manna í launaflokka,
sérákvæði um vinnutíma o. fl., sbr. 6. grein.
Bæði heildarsamtökin sögðu upp gildandi kjarasamningi hinn 1. septem-
ber s.l., og hefðu þær kjaradeilur átt að ganga sjálfkrafa til kjaradóms hinn
1. nóvember, þar sem þá höfðu ekki tekist samningar, en áður en íil þess
kom var fresturinn framlengdur til 15. desember. Á siðustu dögum frestsins
tókust samningar milli BSRB og fjármálaráðherra, en hins vegar náðist ekki
samkomulag við BHM, og fór því sú kjaradeila fyrir kjaradóm.
Um það má að sjálfsögðu deila, hvort æskilegt er, að samningsréttur
opinberra starfsmanna skiptist milli tveggja eða fleiri heildarsamtaka, og
ekki síst hvort sú skipting eigi að miðast við það, hvort viðkomandi ein-
staklingar hafi háskólapróf eða ekki. Með framangreindri breytingu á kjara-
samningalögum hlaut sú staða að geta komið upp, sem raunin varð á, þ. e.
að önnur heildarsamtökin næðu samningum, en kjaradeila hinna færi fyrir
kjaradóm.
54