Tímarit lögfræðinga - 01.12.1974, Side 31
haldsafplánun á Reykjavíkursvæðinu, var jafnframt hafinn undirbúningur að
byggingu nýs gæsluvarðhaldsfangelsis í Reykjavík sem hluta af ríkisfangelsinu.
Unnið er nú að hönnun slíkrar byggingar og fengið hefur verið vilyrði fyrir
lóð fyrir hana hjá Reykjavíkurborg. Þess er vænst, að hönnun byggingarinnar
verði langt komin á þessu ári, en síðan fer það eftir fjárveitingum, hvenær unnt
verður að hefjast handa um byggingarframkvæmdir.
Vinnuhælið að Litla-Hrauni rúmar nú 50 fanga. Það var stækkað um 20
klefa með viðbyggingu, sem tekin var í notkun haustið 1971. Frá því að við-
byggingin var tekin að fullu í notkun, hefur hæiið ekki verið fuilsetið, og lætur
nærri, að á síðastliðnu ári hafi verið að meðaltali um 35 fangar á hælinu á
dag.
Undanfarin ár hefur verið unnið að því að bæta vinnuaðstöðu á hælinu og
auka fjölbreytni vinnunnar, og í því skyni var byggður nýr vinnuskáli, sem tek-
inn var í notkun á síðastliðnu hausti. Hælið hefur nú byrjað framleiðslu á gang-
stéttarhellum og milliveggjaplötum. Hefur sú framleiðsla gengið vel, og gengið
hefur greiðlega að selja vöruna. Þá hefur hælið um nokkur undanfarin ár
verið einn helsti framleiðandi netasteina fyrir útgerðina. Auk þess er á hælinu
unnið að hnýtingu spyrðubanda, umslagagerð og samsetningu pappakassa
fyrir skjalasöfn.
Á miðju síðastliðnu ári urðu forstjóraskipti á Vinnuhælinu. Markús A. Ein-
arsson lét af störfum og Helgi Gunnarsson tók við.
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg var lokað í rúma 3 mánuði á síðastliðnu
ári, meðan fram fór all umfangsmikil viðgerð á húsinu. Er það sennilega lengsta
samfellda lokun hússins á þeim 100 árum, sem liðin eru síðan það var tekið
í notkun.
Á Vinnuhælinu að Kvíabryggju hafa undanfarið svo til eingöngu verið vist-
aðir afplánunarfangar. Aðeins örfáir vistmenn hafa verið þar vegna meðlags-
skulda síðastliðin 2—3 ár.
Samkvæmt 14. gr. laganna um fangelsi og vinnuhæli skal starfrækja sér-
sérstaka stofnun til þess að annast umsjón og eftirlit með þeim, sem frestað
er ákæru gegn, dæmdir eru skilorðsbundið eða leystir úr fangelsi með skilyrð-
um. Nánari ákvæði um þessa stofnun voru síðan sett með reglugerð um skil-
orðseftirlit nr. 20 21. janúar 1974, en stofnunin tók síðan til starfa 1. desember
sl. Forstöðumaður hefur verið ráðinn til eins árs, Axel Kvaran, sem verið hefur
aðalvarðstjóri í lögreglunni í Reykjavík. Stofnunin hefur skrifstofu í Gimli
við Lækjargötu, og í húsnæði hennar hefur fangaprestur einnig skrifstofu sína
og sömuleiðis hafa Félagasamtökin Vernd fengið þar aðstöðu fyrir fulltrúa.
Jón Thors
STARFSEMI SAMBANDS ÍSLENSKRA
SVEITARFÉLAGA 1974
Samband íslenskra sveitarfélaga er frjáls hagsmunasamtök, sem ætlað er að
vinna að hverskonar sameiginlegum hagsmunamálum sveitarfélaganna í land-
inu og að efla samstarf sveitarfélaganna og almenna fræðslu um sveitar-
stjórnarmál.
205