Tímarit lögfræðinga - 01.12.1974, Side 34
svo og verkefni, sem fela í sér jöfnun á aðstöðu einstakra byggðarlaga. Ríkis-
valdinu verði dreift út um landshlutana, eftir því sem unnt verður og hentugt
mun þykja, ýmist þannig að einstakar ríkisstofnanir verði í heild fluttar frá
höfuðborginni eða komið verði upp deildum eða útibúum frá ríksstofnunum í
landshlutunum. Sveitarfélögin annist staðbundin verkefni, sem fyrst og fremst
snerta íbúa sveitarfélaga og daglegt lif þeirra.
Lagt er til, að lögum verði breytt, þannig að réttarstaða allra sveitarfélaga,
bæði hreppa og kaupstaða, verði sú sama.
Þá er gerð tillaga um, að komið verði á fót sérstökum, óháðum dómstól til að
skera úr ágreiningi um stjórnsýslumálefni milli einstaklinga, sveitarstjórna og
ríkisins.
Lagt er til, að sett verði lög um landshlutasamtök sveitarfélaga, sem verði
ráðgjafar- og þjónustuaðilar sveitarfélaganna, en jafnframt verði stefnt að því,
að landshlutasamtökunum verði smám saman falin bein stjórnsýsluverkefni,
eftir því sem þau þróast. .. . _ _ ,
Magnus E. Guðjonsson
FÉLAG SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Á ÍSLANDI
Aðalfundur Félags Sameinuðu þjóðanna var haldinn í Reykjavík 14. desemb-
er 1974. Jóhannes Elíasson bankastjóri var endurkjörinn formaður. Aðrir í
stjórn eru Baldvin Tryggvason framkvæmdastjóri, Guðrún Erlendsdóttir hrl.,
Helgi Elíasson fyrrv. fræðslumálastjóri og Knútur Hallsson skrifstofustjóri. Frú
Sigríður Magnússon baðst undan endurkjöri, og var Guðrún kosin í hennar
stað. Framkvæmdastjóri félagsins er Guðmundur S. Alfreðsson laganemi.
Formaður flutti á fundinum skýrslu stjórnar um starfsárið 1974. Verða hér
taldir helstu þættir hennar. 12. febrúar var haldinn almennur fundur um við-
fangsefni og niðurstöður 28. allsherjarþings Sþ. Þar tóku fulltrúar allra stjórn-
málaflokka, sem hlut áttu að sendinefnd islands á því þingi, þátt í hringborðs-
umræðum, sem Eiður Guðnason stýrði. Talsmenn flokkanna voru Baldvin Jóns-
son hrl., Hannes Pálsson útibússtjóri, Oddur Ólafsson alþm., Sigurjón Ingi
Hilaríusson kennari og Svava Jakobsdóttir alþm. Funtiurinn þótti takast vel,
umræður voru líflegar og margar fyrirspurnir bárust frá fundargestum, sem
voru um 30 talsins. Stefnt er að því, að fundir sem þessi verði árvissir við-
burðir í starfi félagsins. Snemma árs auglýsti félagið að vanda sumarnámskeið
í aðalstöðvum Sþ í New York og Genf. Dan Wiium laganemi sótti fyrrnefnda
námskeiðið. Sigurður Gústavsson hagfræðingur sat fyrir félagið tvo mannfjölda-
fundi erlendis í maí og júní og í ágúst var hann fulltrúi Islands á mannfjölda-
ráðstefnu SÞ í Búkarest. Sigurður gerði heimkominn grein fyrir þessu viðfangs-
efni í ýtarlegu sjónvarpsviðtali. Félagið annast útsendingu fréttabréfs Upplýs-
ingaskrifstofu Sþ í Kaupmannahöfn. Það kemur út á íslensku 11 sinnum á ári,
hvert tölublað í 120 eintökum. Nú er í prentun upplýsingabæklingur um Alþjóða-
bankann og IDA, sér félagið um útgáfuna, en bankinn borgar brúsann. I nóv-
ember sóttu Baldvin Tryggvason og Eiður Guðnason sjónvarpsfréttamaður upp-
lýsingafund um Alþjóðabankann í Kaupmannahöfn. 24. október beitti félagið
208