Tímarit lögfræðinga - 01.12.1974, Qupperneq 37
Lífeyrissjóður
Lífeyrissjóður lögfræðingasambandsins og Lífeyrissjóður danskra hagfræð-
inga voru stofnaðir 1961, þegar í fyrsta sinn var gert samkomulag um samn-
ingsráðningar, og var tilgangur þeirra að veita eftirlaunatryggingu á grundvelli
greiðslna eftir samningnum.
Eftirlaunasjóður greiðir eftirlaun vegna aldurs, svo og örorku-, maka- og
barnabætur. Þessar greiðslur eru reiknaðar í samræmi við reglur, sem trygg-
ingaráðið danska hefur viðurkennt sem útreikningsgrundvöll fyrir lífeyristrygg-
ingarfélög. Eru bæturnar reiknaðar eftir tryggingarstærðfræðilegum regl-
um, eftir því sem inn hefur verið borgað, og búist er við að verði greitt, svo og
eftir aldrinum, þegar menn gerðust aðilar að Iífeyrissjóði. Maka- og barnabæt-
ur eru reiknaðar út á hópgrundvelli og því ekki tekið tillit til launaflokks og
slíkra atriða.
Fyrir utan makabætur greiðir lífeyrissjóðurinn 100.000 d.kr. hóplíftrygging-
arbætur, ef menn falla frá í starfi eða við herþjónustu og eru í lífeyrisdeild
sjóðsins. Þetta gildir einnig um eftirlaunamenn, sem ekki eru komnir á 67.
aldursár. Ekki er tekið sérstakt iðgjald vegna þessarar hóplíftryggingar og
ekki heldur vegna slíkrar tryggingar maka sjóðfélaga. Sú trygging er 30.000
d.kr. Þeir, sem aðild eiga að höfuðstólstryggingardeild sjóðsins, njóta hóp-
líftryggingar að fjárhæð 50.000 d.kr.
Lífeyrissjóðurinn greiðir vegna örorku, auk örorkubóta, örorkutryggingar-
fjárhæð að upphæð 70.000 d.kr. fyrir einhleypa og 25.000 d.kr. fyrir gifta sjóð-
félaga. Þessi trygging fer stiglækkandi árlega um 2.800 d.kr. og 1000 d.kr. frá
fertugasta aldursári, svo að hún er 14.000 d.kr. og 5.000 d.kr., ef sjóðsfélagi
er 59 ára. Tryggingin fellur burt við sextugasta aldursár. Auk þessa veitir líf-
eyrissjóðurinn hópslysatryggingu þeim sjóðfélögum, sem í starfi eru, og eru
bæturnar 100.000 d.kr., ef örorka er 100%. Þetta er veitt án sérstaks iðgjalds.
Ef örorkan er 30% eða meiri, eru veittar bætur hlutfalIslega. Tryggingin nær
auk slysa til örorku vegna heilabólgu, mænusiggs, lömunarveiki, algjörrar
blindu og tannmissis (1000 d.kr.)
Heildartekjur lífeyrissjóðsins á ári eru um 50 milljónir d.kr. Eignir sjóðsins
eru ávaxtaðar í skuldabréfum, hlutabréfum, veðskuldabréfum og fasteignum.
Hefur sjóðurinn eignast allmörg íbúðarhús á Kaupmannahafnarsvæðinu.
Sjóðsstjórnin hefur tekið þá ákvörðun, að sjóðsfélagar hafi forgangsrétt að
þessum íbúðum, eftir því hve lengi þeir hafa verið félagar. Sjóðurinn veitir
lán gegn fasteignaveði til sjóðfélaga, sem eiga eða vilja eignast fasteignir.
Atvinnuleysissjóður
Hópur lögfræðikandidata, sem ekki hefur fengið vinnu við lögfræðistörf,
hefur farið vaxandi í Danmörku síðan 1972. Hinn 15. október 1974 voru 317
lögfræðingar og hagfræðingar atvinnulausir. Af þeim voru um 80% lögfræð-
ingar.
Lögfræðinga- og hagfræðingasambandið hefur gert ýmsar ráðstafanir vegna
vinnuástandsins. Hefur þar verið um að ræða leit að stöðum, leiðbeining-
ar fyrir hina atvinnulausu, svo og námskeið og endurmenntunaráætlanir. Löq-
fræðinga- og hagfræðingasambandið hefur einnig látið gera spár um at-
vinnuástandið og sett á fót nefnd til að kanna, á hvern hátt námið geti bet-
ur búið menn undir væntanleg störf.
211