Tímarit lögfræðinga - 01.12.1974, Page 38
Loks hefur sambandið sett á fót atvinnuleysissjóð, sem veitir styrki þeim
kandidötum, sem ekki hafa fengið stöðu mánuði eftir próf. Styrkurinn er
132,— d.kr. í allt að 180 daga á fyrsta ári eftir kandidatspróf. Búist er við, að
úr sjóðnum verði greiddar um 4 milljónir d.kr. í styrki 1974—1975. Sjóðurinn
er fjármagnaður að nokkru af framlögum frá félagsmönnum í sambandinu og
að nokkru með ríkisframlagi.
Forlag
Forlag lögfræðingasambandsins var stofnað 1959 í því skyni að gefa út
lagabækur, — kennslubækur, lagaskýringar og önnur rit, sem varða félags-
menn. Forlagið á að reyna að gera bækurnar ódýrar en tryggja þó höfund-
um sanngjörn ritlaun. Ekki á að stefna að neinum ágóða af starfseminni.
Forlag lögfræðingasambandsins gefur út meginþorra kennslubóka í lög-
fræði og ýmsar handbækur til notkunar fyrir lögfræðinga í starfi og aðra þá,
sem vinna að lögfræðilegum verkefnum.
Forlagið hefur gefið út um 200 bækur. Velta þess á ári er um 2,5 milljónir
d.kr.
Eftir sameiningu Lögfræðingasambands Danmerkur og Hagfræðingafélags
Danmerkur hefur verið rætt um að færa starfsemi forlagsins út og gefa út
bækur um hagfræðileg efni. Vegna þess hefur nú verið skráð firma, Þjóðfé-
lagsvísindaforlagið.
Tímarit
Lögfræðinga- og hagfræðingasambandið sendir öllum félagsmönnum tíma-
rit, sem fjallar um lögfræðileg og hagfræðileg efni, og „Debat og Orientering"
en í því birtast sambandsfréttir. Allir félagsmenn, sem hafa tekið kandi-
datspróf fá einnig sent ,,AC-Debat“. Það blað er gefið út af háskólamanna-
sambandinu. Auglýsingar um stöður eru birtar í tímaritinu fyrir lögfræðinga
og hagfræðinga. Þeir félagsmenn, sem leita eftir atvinnu, geta fengið tekna
auglýsingu ókeypis, og má láta vtsa á skrifstofuna í því sambandi. „Debat og
Orientering" flytur efni um sambandið og umræður um stéttarmál og hags-
munamál lögfræðinga og hagfræðinga.
Símenntun
Til að framfylgja því ákvæði í sambandslögum að sambandið eigi að starfa
að því að félagsmenn haldi við og auki sérmenntun sína, hefur stjórn sam-
bandsins skipað nefnd, sem á að stjórna námskeiðum fyrir félagsmenn. Á
hverju misseri heldur þessi nefnd nokkur námskeið um lögfræðileg og hag-
fræðileg efni. Haldin eru upprifjunarnámskeið í 14 lögfræðilegum sérefnum,
og er þeim hagað þannig, að þátttakendur geta á tveimur misserum fengið
yfirlit yfir nýjustu viðhorf t öllum kennslugreinum í lögum. Þá eru einnig m. a.
haldin námskeið um ný lög og hagfræðileg efni, svo og námskeið í ensku,
þýzku og frönsku lagamáli og hagfræðimáli.
Að því er stefnt, að þátttökugjöld í námskeiðunum standi undir kostnaði
vegna kennslu, húsnæðis og undirbúnings. Á ári hverju taka um það bil
1000 lögfræðingar og hagfræðingar þátt í námskeiðum sambandsins. Veltan
á ári er um 800.000 d.kr.
212