Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Page 42

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Page 42
samtímis og sekt tiltekin í einu lagi skv. 77. gr. hgl. fyrir brot gegn fleiri en einu lagaákvæði, þar sem sektir skyldu renna í mismunandi sjóði. Hefur það þá verið dómvenja, að það fari eftir aðalbrotinu, í hvaða sjóð sektin er látin renna í heild sinni. Dómstólunum hefur þó einnig verið talið heimilt að skipta sektarfjárhæð milli sjóðanna í því hlutfalli, sem þeir telja hæfilegt.40 Með 1. nr. 75/1982 og 10/1983 voru flest sérákvæðin felld brott úr lögum, svo að lítil hætta er nú á því, að mismunandi sjóðum lendi saman. VI. VARAREFSING FÉSEKTA 1) Hugtak og lagarök. Vararefsing er frelsisskerðing í formi varð- halds eða fangelsis, sem að jafnaði fylgir dómsákvörðunum um fé- sektir og er ætlað að koma í stað sekta, sem fást ekki greiddar. Fésektir koma misjafnt við sökunauta vegna mismunandi greiðslu- getu þeirra eða greiðsluvilja. Reynt er að haga fullnustu fésekta þann- ig, að þær skapi þann varnað, sem þeim er ætlað, en komi jafnframt réttlátlega niður á þeim, sem sektaðir eru. Fésektir mundu missa marks sem refsing, ef látið væri staðar numið við þá, sem greiða sektir ótilneyddir. Einhverra þvingunaraðgerða er þörf. Nauðungar- innheimta nægir gagnvart þeim, sem geta greitt, en vilja ekki greiða sekt. En nauðungarinnheimta dugir ekki gagnvart efnalausum söku- nautum, sem eru ófærir um að greiða sektir. Þá stöndum við hins vegar framrni fyrir því vandamáli, hvort réttlætanlegt sé að láta efna- lausa sökunauta sæta annarri og þyngri refsingu en þá, sem betur mega sín. Má ekki telja það mismunun þegnanna eftir efnahag? Varn- aður og réttlæti verða illa samrýmd að þessu leyti. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar til þess að leysa vandamálin varðandi vararefsinguna. Nefna má sænsku lausnina, sem fyrr var getið. Samkvæmt henni verður ákæruvaldið að krefjast dómsákvörð- unar í hvert skipti, sem sektir fást ekki greiddar, og fer þá fram könn- un á öllum aðstæðum sökunauts og eftir atvikum mat á þöi'finni fyrir vararefsingu frá sjónarmiði almannahagsmuna (varnaðarástæður).41 Norræna refsilaganefndin lagði til á sínum tíma, að dregið yrði sem mest úr notkun vararefsingar og að nauðungarinnheimta fésekta yrði efld í staðinn.42 I raun er nauðungarinnheimta oftast framkvæman- 40 Þórður Eyjólfsson: Fésektir. Tímarit lögfr. 1963, bls. 57. 41 Bötesverkstallighetslag nr. 189/1979, sbr. 1. nr. 352/1983. 42 Alternativer til frihedsstraf. NU A 1980:13, bls. 28; Bötestraffet. NU A 1975:5. 248

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.