Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Blaðsíða 59
hann Gunnarsson tölvufræðingur ( Fjárlaga- og hagsýslustofnun og Friðgeir
Björnsson yfirborgardómari.
Hinn 21. september var haldinn fundur þar sem dr. Ármann Snævarr leit
til fortíðar og framtíðar með fundarmönnum.
Hinn 3. júní var haldið málþing á vegum Dómarafélags íslands og Lög-
mannafélags (slands í Fólkvangi á Kjalarnesi um þær breytingar á einkamála-
lögum sem gerðar voru með lögum nr. 54/1988. Framsögumenn voru Hákon
Árnason hrl., Viðar Már Matthíasson hrl. og Þór Vilhjálmsson hæstaréttar-
dómari.
Stjórnin hefur nú í undirbúningi að halda fund um málnotkun við ritun
dóma. Ef til vill væri þarft og jafnvel nauðsynlegt að halda námskeið af ein-
hverju tagi um þetta efni.
C. UMSAGNIR UM LAGAFRUMVÖRP OG ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGUR.
Stjórn félagsins hefur gefið umsögn um eftirtalin lagafrumvörp og þings-
ályktunartillögu:
1. Þingsályktunartillaga um gjafsóknarreglur.
2. Frumvarp til laga um aðför.
3. Frumvarp til laga um breyting á þinglýsingarlögum nr. 39 10. maí 1978.
4. Frumvarp til laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds i héraði.
5. Frumvarp til laga um skráningu og meðferð persónuupplýsinga.
6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um umboðsmann Alþingis nr.
13/1987.
7. Frumvarp til laga um samningsbundna gerðardóma.
8. Þá hefur stjórnin haft til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kyrr-
setningu og lögbann að beiðni höfundar þess, Markúsar Sigurbjörns-
sonar prófessors og borgarfógeta, og lauk því starfi nýverið.
Umsagnir þessar hafa verið mismunandi ítarlegar. Mest vinna var lögð
í umsagnir um aðskilnaðarfrumvarpið, aðfararlagafrumvarpið og drögin að
frumvarpi til laga um kyrrsetningu og lögbann. Að samanlögðu hefur verið
hér um allmikið starf að ræða sem að mestu leyti hefur verið unnið af
stjórnarmönnum, þótt fleiri hafi verið kallaðir til. Verður að segja að erfitt
verkefni er að fá flókið, fullbúið lagafrumvarp í hendur til umsagnar, og því
miður leyfir tími manna tæplega að umsagnir séu eins ítarlegar og vandaðar
og æskilegt væri.
Sérstaka ástæðu verður að telja til þess að vekja athygli félagsmanna á
frumvarpinu til laga um breytingu á lögum um umboðsmann Alþingis þar
sem það snertir sérstaklega stöðu dómara. Frumvarpið var flutt af Auði Eiríks-
dóttur, varaþingmanni Kvennalistans. Það var ekki afgreitt á síðasta þingi
og ekki vitað hvort það verður endurflutt á næsta þingi.
Frumvarpið er svohljóðandi:
1. gr.
Við 11. gr. laganna bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Umboðsmanni ber að fylgjast með framkvæmd dómstóla á lögum og rétti
í landinu. Skal hann veita viðtöku kvörtunum um meinta galla á rekstri og