Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Blaðsíða 65
ÞriSji og síðasti morgunverðarfundur starfsársins var svo haldinn 20. mars.
Rætt var um lögmæti nýju lánskjaravlsitölunnar og hafði Jón Steinar Gunn-
laugsson hrl. framsögu.
FÉLAGSMENN
Nýir félagar Lögmannafélagsins frá því á aðlfundi 1988 voru 21, þar af 8
sem leyst höfðu til sln eldri réttindi til málsflutnings og hafið lögmannsstörf.
Á sama tíma fengu 5 héraðsdómslögmenn réttindi til málflutnings fyrir Hæsta-
rétti. Af félagaskrá féllu 14. Félagar eru nú alls 312 eða 7 fleiri en á aðal-
fundi 1988.
Héraðsdómslögmenn eru 191 og hæstaréttarlögmenn 121. Heiðursfélagar
eru hæstaréttarlögmennirnir Ágúst Fjeldsted og Egill Sigurgeirsson. 15 félags-
menn eru 70 ára og eldri og eru þeir samkvæmt samþykktum félagsins lausir
undan skyldu til greiðslu árgjalda.
STJÓRNARFUNDIR
Eins og undanfarin ár voru stjórnarfundir haldnir reglulega hvern miðviku-
dag, nema yfir hásumarið og um stórhátíðir. Alls voru haldnir 41 stjórnar-
fundur og 272 málsatriði bókuð.
Umtalsverður hluti af starfstíma stjórnar fór í afgreiðslu ýmiss konar kæru-
og ágreiningsmála, er fyrir hana voru lögð. Alls bárust 36 slík mál frá aðal-
fundi 1988. Mál þessi voru misjafnlega umfangsmikil, en afgreiðsla þeirra var
með þeim hætti, að úrskurðir voru kveðnir upp í 2 málum, 4 málum lauk
með álitsgerðum, 4 mál voru afturkölluð, 23 mál voru felld niður, 2 málum
var vísað frá og 1 máli var ólokið.
Félaginu bárust 29 erindi, þar sem stjórnin var beðin umsagnar um leyfis-
umsóknir til málflutnings fyrir héraðsdómi. Stjórnin mælti með 13 umsóknum
og ákvað að mæla ekki gegn 15 umsóknum, en þar var um að ræða lögfræð-
inga í opinberu starfi, sem ber að afhenda dómsmálaráðuneytinu málflutnings-
leyfi sín meðan þeir gegna hinu opinbera starfi. Mælt var gegn einni umsókn.
STARSEM! FASTANEFNDA FÉLAGSINS
Laganefnd, kjaranefnd og gjaldskrárnefnd störfuðu reglulega eins og áð-
ur. Gjaldskrárnefnd fékk á starfsárinu alls 8 erindi til ályktunar og hefur
nefndin afgreitt öll þau mál er henni bárust. Þá kom stjórn námssjóðs nokkr-
um sinnum saman til að sinna umsóknum um styrki úr sjóðnum.
FRÉTTABRÉF
Eins og undanfarin ár kom Fréttabréf félagsins 5 sinnum út á starfsárinu.
Birtast þar meðal annars úrskurðir og álitsgerðir stjórnar, sem talið er að
hafi almennt gildi fyrir lögmenn. Þá er í Fréttabréfinu gerði grein fyrir öðrum
störfum stjórnar og ýmsum málum sem tengjast störfum lögmanna.
ÖNNUR ÚTGÁFA
önnur regluleg útgáfa á vegum félagsins er samantekt og útsending hæsta-
réttardóma til áskrifenda nokkurn veginn jafnóðum og dómarnir eru kveðnir
upp. Er þessi útgáfa fyrst og fremst hugsuð sem bráðabirgðalausn þar til
271