Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Page 37
6. NIÐURSTÖÐUR: UMFANG ÍTREKUNARTÍÐNI
í HEILDARÚRTAKI
Hver er ítrekunartíðni meðal þeirra sem sæta refsingu á Islandi? Fjöldi þeirra
sem fangelsaðir voru á ný úr þessu úrtaki, sem telur sem fyrr segir þá sem luku
afplánun í fangelsi eða með samfélagsþjónustu og þá sem fengu skilorðsbund-
inn dóm, er hverfandi fyrstu sex mánuði eftirfylgninnar, en það kann að stafa af
þeim tíma sem málsmeðferð tekur. En frá og með sjötta inánuði eftirfylgninnar
fjölgar jafnt og þétt þeim sem fangelsaðir eru á ný. Innan eins árs höfðu 5 pró-
sent verið fangelsaðir á ný, innan þriggja ára 19.5 prósent og innan fimm ára 24
prósent. Svo vikið sé að niðurstöðum um nýja dóma kom fram að um það bil
12 prósent þeirra sem luku afplánun á Islandi voru dæmdir á ný innan eins árs
frá fullnustudegi, 29 prósent voru dæmdir á ný innan þriggja ára og 35 prósent
voru dæmdir á ný innan fimm ára.3 Loks kom í ljós að meira en þriðjungur
(38.8 prósent) úrtaksins kom við sögu lögreglunnar innan tólf mánaða frá því
að þeir luku afplánun, 60 prósent hafði komið við sögu lögreglunnar innan
þriggja ára og 68.2 prósent hafði komið við sögu lögreglu þegar þeim hafði ver-
ið fylgt eftir í fimm ár.
í stuttu máli var um það bil fjórðungur þeirra sem refsað var á Islandi árin
1994 til 1998 fangelsaður á ný, rétt rúmlega þriðjungur var dæmdur á ný og rétt
tæplega tveir þriðju komu við sögu lögreglu innan fimm ára frá því að afplán-
un lauk.
7. EINKENNI ÞEIRRA SEM SÆTTU ÓLÍKUM TEGUNDUM
REFSINGA
í rannsókninni var sérstaklega greindur hver forspárþáttur ítrekunar fyrir þá
sem sæta hverri þeirra þriggja tegunda refsinga sem rannsóknin tók til, þ.e.
fangavist, samfélagsþjónustu og skilorðsbundnum dómi. Þessi greining rann-
sakar í þrennu lagi hvaða einkenni tengjast ítrekunartíðni, fyrst hjá þeim sem
losna úr fangelsi, þá hjá þeim sem ljúka afplánun með samfélagsþjónustu og
loks hjá þeim sem fengið höfðu skilorðsbundinn dóm. Ástæðan fyrir því að
þessum greiningum er haldið aðskildum er sú að þessir þrír hópar samanstanda
af talsvert ólíkum tegundum brotamanna og afbrota.
3 Þessar tölur um nýja dóma taka ekki til dóma fyrir afbrot sem einungis varða fjársektum. Tölumar
um nýja dóma, vanmeta þannig heildarfjölda nýrra dóma yfir þeim sem í úrtakinu em.
31