Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Qupperneq 43

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Qupperneq 43
9. SAMANTEKT Rannsóknin mældi umfang og forspárþætti ítrekunar á íslandi á grundvelli upplýsinga um 3216 einstaklinga sem fengu skilorðsbundinn dóm eða luku af- plánun í fangelsi eða samfélagsþjónustu á tímabilinu 1994-1998. í samræmi við fyrri rannsóknir í afbrotafræði var ítrekunartíðni skilgreind sem prósenta þeirra einstaklinga sem fengu þessar ólíku tegundir refsinga og brutu af sér aftur mælt í ljósi eftirfarandi þriggja þátta. 1) Ný afskipti lögreglu; 2) hlutu nýjan dóm; og 3) fangelsaðir á ný. Með hjálp tiltekinnar tölfræðiaðferðar (survival analysis techniques) var ítrekunartíðnin reiknuð fyrir alla sem lentu í úrtakinu og síðan einnig sérstaklega fyrir þá hópa sem hlutu þessar þrjár mismunandi tegundir refsinga. Einnig var mælt hvaða áhrif kyn, aldur, fyrri brotasaga, lengd refsinga eða fangavist, tegund brots og afplánunarár hefur á tíðni ítrekunar. Að lokum var rannsakað hvaða áhrif ólíkar tegundir refsinga hafa á líkurnar á ítrekun. Greiningin á umfangi ítrekunar sýndi að um fjórðungur allra þeirra sem lentu í úrtakinu voru fangelsaðir á ný, þriðjungur hlaut nýjan dóm og lögregla hafði afskipti af tveimur af hverjum þremur á ný innan fimm ára frá því að þeir luku afplánun. Itrekunartíðni fyrir þá sem luku fangavist var nokkru hærri eða 37 prósent fangelsaðir á ný, 44 prósent dæmdir á ný og 73 prósentum þurfti lög- regla að hafa afskipti af á ný innan fimm ára. Ef litið er eingöngu á þá sem hlutu skilorðsbundinn dóm voru 15 prósent fangelsaðir á ný, 29 prósent voru dæmd- ir á ný og 66 prósentum hafði lögregla afskipti af á ný. Að lokum var þeim fylgt eftir sem luku samfélagsþjónustu í þrjú ár eftir fullnustu og í ljós kom að 17 prósent þeirra voru fangelsaðir á ný, 22 prósent hlutu nýjan dóm og af 55 pró- sentum hafði lögreglan haft afskipti af á ný. Fyrri rannsóknir á ítrekunartíðni hafa yfirleitt ekki tekið með þá sem lokið hafa samfélagsþjónustu eða fengið skilorðsbundinn dóm. Þess vegna er ekki vitað hvemig þessum hópum reiðir af í samanburði við sambærilega hópa erlendis. Aftur á móti er til fjöldi rannsókna á ítrekunartíðni þeirra sem ljúka fangavist. Niðurstöður þeirra rannsókna benda til þess að ítrekunartíðni þeirra sem ljúka fangavist á Islandi sé mjög svipuð því sem tíðkast meðal annarra þjóða, jafnvel þó að margar þessara þjóða beiti tals- vert þyngri refsingum en íslendingar. Eins og fyrr var vikið að er sú afstaða ríkj- andi í albrotafræði að ítrekunartíðni sé almennt lægri í fámennari og menning- arlega einsleitum samfélögum en hjá fjölmennari og menningarlega fjölbreytt- ari þjóðum. Niðurstöður þessarar rannsóknar styðja ekki þessa afstöðu og eru því afar athyglisverðar í ljósi afbrotafræðinnar. Þessum þætti eru gerð nánari skil á öðrum vettvangi (Baumer, Wright, Kristrún Kristinsdóttir og Helgi Gunn- laugsson, 2001). Greining á forspárgildi ítrekunar sýnir nokkur athyglisverð mynstur. Sérstak- lega er athyglisvert, þegar tekið hefur verið tillit til annarra þátta, að tíðni ítrek- unar er tiltölulega lítið breytileg milli þeirra sem hljóta ólíkar tegundir refsinga. Þessi greining sýnir almennt að ítrekunartíðni hefur tilhneigingu til að vera hæst meðal þeirra sem luku vist í fangelsi og lægst meðal þeirra sem luku samfélags- þjónustu, að undanskildri nýrri fangelsun, þar sem þeir sem fengu skilorðs- 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.