Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Side 45
ar á ítrekunartíðni. Að lokum er víst, að svo lengi sem stjómvöld þróa og inn-
leiða ný úrræði til að auðvelda brotamönnum farsæla aðlögun að samfélaginu
er fullvíst að rannsóknir á ítrekunartíðni bjóða upp á mikilvæga leið til að meta
áhrif úrræða af þessu tagi.
10. HELSTU NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNARINNAR
- Urtakið í rannsókninni var skilgreint sem allir þeir sem luku afplánun dóms
með fangelsisvist eða samfélagsþjónustu eða hlutu skilorðsbundinn dóm frá 1.
janúar 1994 til 30. nóvember 1998 (fjöldi 3216).
- Notaðir voru þrír mælikvarðar á ítrekunartíðni til að fá heildarmynd af endur-
teknum afbrotum á íslandi; ný afskipti lögreglu, nýr dómur og ný fangelsun.
- Fram kom að innan eins árs höfðu 5 prósent heildarúrtaksins verið fangelsað-
ir á ný, innan þriggja ára 19.5 prósent og innan fimm ára 24 prósent.
- Um það bil 12 prósent þeirra sem luku afplánun á Islandi voru dæmdir á ný
innan eins árs frá fullnustudegi, 29 prósent voru dæmdir á ný innan þriggja ára
og 35 prósent voru dæmdir á ný innan fimm ára.
- Meira en þriðjungur (38.8 prósent) heildarúrtaks kom við sögu lögreglunnar
innan tólf mánaða frá því að þeir luku afplánun, 60 prósent kom við sögu lög-
reglunnar innan þriggja ára og 68.2 prósent kom við sögu lögreglu þegar þeim
hafði verið fylgt eftir í fimm ár.
- Greiningin á umfangi ítrekunar sýnir að um fjórðungur allra þeirra sem lentu
í úrtakinu voru fangelsaðir á ný, þriðjungur hlaut nýjan dóm og lögregla hafði
afskipti af tveimur af hverjum þremur á ný innan fimm ára frá því að þeir luku
afplánun.
- Ítrekunartíðni fyrir þá sem luku fangavist sýndi að 37 prósent voru fangelsað-
ir á ný, 44 prósent hlutu nýjan dóm og 73 prósentum þurfti lögregla að hafa af-
skipti af á ný innan fimm ára frá lokum afplánunar.
- Af þeim sem hlutu skilorðsbundinn dóm voru 15 prósent fangelsaðir á ný, 29
prósent voru dæmdir á ný og 66 prósentum hafði lögregla afskipti af á ný inn-
an fimm ára frá dómsuppkvaðningardegi.
- Þeim sem luku samfélagsþjónustu var fylgt eftir í þrjú ár eftir fullnustu og
voru 17 prósent þeirra fangelsaðir á ný, 22 prósent hlutu nýjan dóm og af 55
prósentum hafði lögreglan afskipti á ný.
39