Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Side 59

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2001, Side 59
Á VÍÐ OG DREIF SKÝRSLA UM LAGASTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS 27. FEBRÚAR 1999 TIL 1. MARZ 2000 1. STARFSLIÐ Þessir kennarar voru í fullu starfi við Lagstofnun 1999-2000: Bjöm Þ. Guð- mundsson, Davíð Þór Björgvinsson (í leyfi), Eiríkur Tómasson, Gunnar G. Schram, Jónatan Þórmundsson, Páll Hreinsson, Páll Sigurðsson, Ragnheiður Bragadóttir, Sigurður Líndal, Stefán Már Stefánsson, Viðar Már Matthíasson og Þorgeir Örlygsson (í leyfi). 2. STJÓRN Stjóm stofnunarinnar var kosin á fundi í lagadeild 4. marz 1999 til næstu tveggja ára. Hana skipa Bjöm Þ. Guðmundsson, Davíð Þór Björgvinsson (í leyfi), Jónatan Þórmundsson og Sigurður Líndal. Viðar Már Matthíasson var kosinn varamaður. Stjórn Orators hefur tilnefnt Gunnar Þór Þórarinsson laga- nema í stjómina. Sigurður Líndal gegnir starfi forstöðumanns til ársfundar 2001. Stjómin hélt 2 fundi á tímabilinu 4. marz 1999 - 1. marz 2000 (auk fund- ar 14. marz), auk þess sem stjómarmenn, tveir eða fleiri, hafa rætt málefni stofnunarinnar þegar tilefni hafa gefizt. Ársfund átti að halda 13. apríl 2000 en hann frestaðist af óviðráðanlegum ástæðum. 3. RANNSÓKNIR 1999-2000 Rannsóknir og ritstörf kennara í fullu starfi við lagadeild sem teljast starfa við Lagastofnun: Björn Þ. Guðntundsson Rannsóknir: Unnið að riti á sviði stjómsýsluréttar sem mun koma út í bók á árinu 2000. Davíð Þór Björgvinsson Ritstörf: Álitsgerð um Schengensamstarfið og íslensku stjómarskrána. Fylgiskjal IV með tillögu til þingsályktunar um fullgildingu samnings sem ráð Evrópusam- bandsins og lýðveldið ísland og konungsríkið Noregur gera með sér um þátt- töku hinna síðamefndu um framkvæmd, beitingu og þróun Schengengerðanna. (Lögð fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999-2000). Sérprent bls. 117-148. Meðhöfundar Viðar Már Matthíasson og Stefán Már Stefánsson. Álitsgerð um Schengensamninginn og íslensku stjómarskrána í ljósi samn- ings milli ráðs Evrópusambandsins og Islands um framkvæmd, beitingu og þró- 53

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.