Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1968, Blaðsíða 141
139
prófflokka. Nánar skal gera grein fyrir flokkaskiptingu próf-
greina, samvali greinarhluta í prófgreinir, fjölda prófa og ein-
kunna og niðurröðun prófa á ár í prófskrá, sem deildin semur
og lögð er fram í upphafi kennsluárs.
2. B.A.-próf.
B.A.-próf í raungreinum er fólgið í sex prófstigum í þremur
greinum, aðalgrein og tveimur aukagreinum, auk prófs í upp-
eldis- og kennslufræðum ásamt kennsluæfingum. í aðalgrein
skulu tekin þrjú prófstig, tvö stig í annarri aukagreinanna og
eitt stig í hinni. Deildin getur leyft, að tekin séu þrjú stig í
tveimur greinum. Að þessu prófi loknu öðlast kandídat titilinn
B.A. og kennsluréttindi við gagnfræðaskóla og sérskóla. Ein-
kunnir eru samtals sex, ein einkunn á hverju stigi. Fyrir fjölda
prófa er gerð nánari grein í prófskrá, sbr. gr. 57. a. 1.
b. Próftilhögun.
Próf í verkfræðideild eru að jafnaði haldin í lok vormisseris, og
geta þau verið munnleg, skrifleg eða verkleg. Verkleg próf geta
þó farið fram á öðrum tíma og deildin getur ennfremur leyft próf
á öðrum tíma vegna forfalla eða annarra sérstakra ástæðna.
Skráður stúdent hefur rétt til að ganga undir próf, enda hafi
hann lokið tilskildum æfingum, sbr. gr. 56. d. og sagt sig til fyrri
ársprófa.
Þegar stúdent í verkfræði segir sig til ársprófa, má aðeins undan-
skilja eina prófgrein ársprófsins. Þó eigi stærðfræði 1. árs.
Til þess að öðlast rétt til að hef ja nám á næsta kennsluári, skal
meðaltal stigagilda prófseinkunna ársprófsins að frátaldri einhverri
einni prófgrein eigi vera lægra en 4,50 stig. Deildinni er heimilt
að veita undanþágu frá ákvæðum þessarar málsgreinar, þegar sér-
staklega stendur á að mati hennar.
Stúdentum í B.A.-námi er heimilt að segja sig til prófs í einstök-
um prófgreinum (prófstigum), en þá skal lokið prófi í fyrri próf-
stigum greinarinnar, eða þeim lokið samtímis.
Við gjöf einkunna má taka tillit til úrlausna æfingarverkefna,
sem stúdentinn hefur leyst við námið og ekki er veitt sérstök ein-
kunn fyrir.
Heimilt er að endurtaka próf í einstökum greinum og skal það
þá gert eigi síðar en tveimur misserum frá því að fyrra prófið var
tekið. Ógildist þá próf, sem áður hefur verið tekið í greininni. Við
endurtekningu prófs er ekki skylt að endurtaka verkleg viðfangs-
efni eða æfingar, sem metnar eru til prófseinkunnar, hafi þær áður