Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Blaðsíða 25
Úr ræSu rektors á háskólahátíð 26. október 1974
23
Hjúkrunarnámsbraut hefur verið stofnuð
lnnan háskólans, en ekki hefur það nám
þó verið fullmótað enn. Af öðrum náms-
brautum, sem eru á umræðu- eða undirbún-
‘ngsstigi, má nefna: Sjúkrabjálfun, félags-
raðgjöf, meinatækni, fjölmiðiun, endur-
skoðun, veðurfræði og matvælafræði. Þess
er að vænta, að ákvarðanir um einhverjar
Þessara námsbrauta verði teknar á þessu
skólaári. Það er skoðun mín, að hér beri
að fara að með gát og undirbúa námið vel,
áður en farið er af stað. Annað yrði aðeins
rd að valda vonbrigðum.
Loks má geta þess, að háskólaráð hefur
nýlega falið sérstakri nefnd að athuga, hvort
rett væri að stofna til nýrrar deildar innan
skólans, sem næði yfir þjóðfélagsfræði, fé-
Ugsráðgjöf, sálarfræði og uppeldisfræði,
sem nú eru hluti heimspekideildar, og ef
nl vill fleiri greinar.
Tvö vandamál, sem eru nátengd aðgangi
a háskólanámi og námsbrautum skólans,
niunu verða ofarlega á baugi á næstunni,
en ég mun að öðru leyti ekki fjölyrða um
Pau hér. Það er annars vegar staða hinna
nýju fjölbrautarskóla í menntakerfinu og
•ns vegar fyrirkomulag fullorðinsfræðslu.
'famkvæmdir á vegum háskólans hafa að
undanförnu verið þessar helstar:
Unnið er að 2. áfanga húss fyrir verk-
*oi- og raunvísindadeild. Verkinu hefur
seinkað allverulega, en nauðsvn ber til að
. a því fyrir næsta haust, ef vandræði
eiSa ekki að hljótast af, og að því loknu
Purf að halda áfram framkvæmdum í þágu
Peirrar deildar svo fljótt, sem fjárhagur
eyfir. Þá eru fyrstu framkvæmdir að hefj-
ast á Landspítalalóð, en þar er læknadeild
°S tannlæknadeild fyrirhuguð aðstaða. Að
Pessum málum er unnið í náinni samvinnu
ráðuneyta menntamála og heilbrigðismála
við Háskóla Islands. Þessar framkvæmdir
eru miðaðar við sérþarfir framangreindra
deilda, en brýn börf er nú einnig -—- og ekki
síður — á almennu kennsluhúsnæði í nán-
um tengslum við aðalbyggingu skólans og
annað húsnæði, sem fyrir er á háskólalóð-
inni, sem ekki er miðað við sérhæfð afnot.
I þessu sambandi eru þarfir viðskiptadeildar,
ákveðinna námsgreina innan heimspeki-
deildar og ýmissa hinna nýju námsbrauta
mest aðkallandi.
Háskóli Islands hefur leigt Tjarnarbæ af
Reykjavíkurborg til átta ára, en þó mun
verða um að ræða nokkra samnýtingu með
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. Húsið verð-
ur bráðlega tekið í notkun og nýtt til fyrir-
lestrahalds fyrir stóra hópa, einkum á sviði
efnafræði í verkfræði- og raunvísindadeild
og læknadeild. Enn fremur hefur orðið að
leigja og kaupa húsnæði á þessu ári til lestr-
araðstöðu fyrir stúdenta og til starfsaðstöðu
fyrir kennara.
Hér mun ekki verða fjölyrt um skipulags-
og lóðamál háskólans, en mikið hefur verið
hugað að þeim málum að undanförnu. Það
er von mín og trú, að Háskóli Islands og
borgaryfirvöld finni lausn á þessum málum
í vetur, sem vel megi við una.
Loks skal minnst á þjóðarbókhlöðu, sem
ennþá er á undirbúningsstigi, en brýna
nauðsyn ber til, að endanlegar ákvarðanir
verði teknar um byggingu hennar, áður en
hannaðar verða fleiri byggingar fyrir há-
skólann á háskólalóðinni.
Stjórnsýsla háskólans er nú í mótun, og svo
hlýtur að jafnaði að vera hjá stofnun, sem
vex jafnört og Háskóli Islands hefur gert
nú að undanförnu. Hér, sem á öðrum svið-