Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Blaðsíða 84
VerkfræSi- og raunvísindadeild og fræðasvið hennar
82
Ráðstefna um matvœlaeftirlit var haldin á
vegum efnafræðistofu Raunvísindastofnun-
ar háskólans og efnaverkfræðideildar Verk-
fræðingafélags íslands á Hótel Loftleiðum
dagana 11.—12. nóvember 1974.
Fjallað var um íslenskan matvælaiðnað,
stöðu hans og þróun og um matvælarann-
sóknir, matvælaeftirlit, lög og reglugerðir.
Fyrirlestrar voru samtals 18, þar af einn
erlendur sérfræðingur. Ráðstefnunni veittu
forstöðu þeir dr. Sigmundur Guðbjarnason
prófessor og Pálmi Stefánsson efnaverk-
fræðingur, formaður efnafræðideildar VFÍ.
Sumarstofnun í stærðfræði
Sumarið 1974 var fáeinum erlendum
stærðfræðingum boðið að dveljast nokkrar
vikur við Háskóla íslands til fyrirlestra-
halds og rannsókna. Gekkst íslenska stærð-
fræðafélagið fyrir stofnun sjóðs í þessu
skyni í tilefni sjötugsafmælis dr. Leifs Ás-
geirssonar prófessors sem látið hefur af
störfum eftir gagnmerkt brautryðjendastarf
að stærðfræðirannsóknum við háskólann.
Þeir gestix sem hingað komu og héldu
hér fyrirlestra á þinginu voru prófessorarnir
Paul Erdös frá ungversku vísindaakademí-
unni í Búdapest, Lars Gárding frá há-
skólanum í Lundi, Erwin Engeler frá
tækniháskólanum í Zúrich, Erik M. Alfsen
frá Oslóarháskóla, William B. Bade frá
háskólanum í Berkeley, Wilhelm Klingen-
berg frá Bonn, Henry Crapo frá Waterloo
og Walther Whitley frá Montreal.
Margir gestanna voru á ferð yfir hafið,
og voru útgjöld vegna þeirra mjög tak-
mörkuð. Dvöldu þrír þeirra hér í 3—4
vikur en hinir skemur. Fluttu þeir allir
fyrirlestra um rannsóknir sínar.
Þótti mönnum sem hér væri bryddað upp
á nýjung sem framhald þyrfti að vera á
vegna alþjóðlegra stærðfræðivísinda og
þátttöku íslenskra stærðfræðinga í þeiffl,
en stærðfræði er ein af undirstöðugreinum
alira tæknivísinda.
Námskeið í „Finite Element"-aðferðint»
fyrir starfandi verkfræðinga og verkfræði'
nema á síðasta námsári var haldið dagana
7.—14. mars 1975 á vegum verkfrseði'
og raunvísindadeildar og Verkfræðinga-
félags Islands. Dr. Esben Byskov, lektot
í Tækniháskóla Danmerkur, flutti þar fyrit'
lestra og skipulagði æfingar ásamt prof-
Júlíusi Sólnes og Geir A. Gunnlaugssyo*
dósent.
Gestafyrirlestrar vísindamanna frá útlönd'
um
PÁLL JENSSON verkfræðingur, er þa
stundaði rannsóknir við Danmarks tekn-
iske Höjskole í Kaupmannahöfn, hélt 5
daga námskeið í reiknilíkanagerð („sirnu-
lation") dagana 21.—25. janúar í Árna-
garði og fyrirlestur um „stochastíska prð'
grammeringu” á vegum Reiknistofu Raun-
vísindastofnunar 17. janúar 1974.
C. H. GUDNASON, prófessor í rekstrar-
tækni við tækniháskólann í Kaupmanna-
höfn (Danmarks tekniske Höjskole, Drifts'
teknisk Institut), flutti þrjá fyrirlestra uin
framleiðslutœkni og rekstrartcekni (Pf0'
duktions- og driftsteknik) dagana 20., 22-
og 24. maí 1974. Prófessor Gudnason °S
samstarfsmenn hans við Driftsteknisk
Institut hafa veitt verkfræði- og raunviS'
indadeild mikilsverða aðstoð við að bygSÍ9
upp kennslu í rekstrar- og stjórnunar-
fræðum, og hafa þeir skipulagt og annas£
kennslu á vegum deildarinnar undanfan0
misseri. Dvaldist dr. Gudnason hér á land1
í viku og var til ráðuneytis fyrir náms'