Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Blaðsíða 341
Lög um Háskóla íslands
339
að svo miklu leyti sem ekki eru sett bind-
andi ákvæði um það í lögum eða reglugerð.
Munnleg próf skulu háð í heyranda
hljóði. Þó er háskóladeild heimilt, ef sér-
staklega stendur á, að ákveða, að slík próf
skuli halda fyrir luktum dyrum.
29. gr.
[Við munnleg próf, sem teljast til fullnað-
arprófs, skal vera einn prófdómari utan há-
skólans. Skrifleg próf dæma hlutaðeigandi
kennarar einir.
Stúdent, sem ekki hefur staðist próf, á
rétt til þess að fá útskýringar kennara á
mati skriflegrar úrlausnar sinnar, ef hann
æskir þess bréflega innan 15 daga frá birt-
ingu einkunnar. Vilji stúdentinn þá eigi
una mati kennarans, getur hann snúið sér
til viðkomandi deildarforseta. Skal þá próf-
dómari skipaður í hverju tilviki. Einnig
getur kennari, telji hann til þess sérstaka
ástæðu, óskað skipunar prófdómara í ein-
stöku prófi.
Menntamálaráðherra skipar prófdómend-
ur að fengnum tillögum háskóladeildar. Þá
eina má skipa prófdómara, sem lokið hafa
viðurkenndu fullnaðarprófi við háskóla í
þeirri grein, sem dæma skal, eða getið hafa
sér orðstír fyrir fræðimennsku í greininni.
Prófdómendur skulu skipaðir til þriggja ára
í senn, nema skipun sé samkvæmt 2. mgr.
hér á undan.
Sé ekki völ á prófdómara hérlendis utan
háskólans, er fullnægir skilyrðum 3. mgr.
hér á undan, er menntamálaráðherra rétt að
skipa háskólakennara til starfans að feng-
inni tillögu háskóladeildar.]1)
1) 1. nr. 45, 25. maí 1976.
30. gr.
Forseti háskóladeildar metur, að höfðu
samráði við greinarkennara, hvort viður-
kenna skuli háskólapróf, sem stúdent hefur
tekið erlendis, og að hverju leyti. Setja má
almenn ákvæði í reglugerð um viðurkenn-
ingu erlendra prófa.
VI. KAFLI
Doktorar og meistarar
31. gr.
[Háskóladeildir hafa rétt til að veita dokt-
orsnafnbót. Slíka nafnbót má veita annað-
hvort í heiðurs skyni eða að undangengnu
sérstöku prófi. Doktorsnafnbót í heiðurs
skyni verður ekki veitt nema með samþykki
3/4 hluta allra atkvæðisbærra deildarmanna
og með samþykki háskólaráðs. Háskóla-
deildir standa fyrir doktorsprófi. Fulltrúar
stúdenta á deildarfundum eiga ekki at-
kvæðisrétt um veitingu doktorsnafnbóta.]2)
32. gr.
Sá, er æskir doktorsnafnbótar, skal að jafn-
aði hafa lokið kandídatsprófi eða embættis-
prófi.
33. gr.
Sá, er æskir að taka doktorspróf, skal láta
fylgja umsókn sinni vísindalega ritgerð eða
ritgerðir, enda varði ritgerðir, ef því er að
skipta, sama meginrannsóknarsvið og myndi
nokkra heild. Umsókn skal stíluð til hlut-
aðeigandi háskóladeildar.
í reglugerð skulu settar reglur um dokt-
orspróf.
2) 1. nr. 67, 29. maí 1972.