Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Page 208
Úr gerðabókum háskólaráðs háskólaárið 1974—1975
206
Rektor bar fram svofellda tillögu sem vat
samþykkt einróma:
„Að fengnum tillögum Tengslanefndar
Háskóla Islands, stjórnar námsbrautar í
hjúkrunarfræðum og deildarráðs lækna-
deildar um viðbótarnám hjúkrunarkvenna
sem ekki hafa stúdentspróf og komast því
ekki inn í námsbraut í hjúkrunarfræðum
við háskólann gerir háskólaráð svofellda
ályktun:
Námsbraut í hjúkrunarfræðum hefur
ekki ennþá öðlast stoð í háskólalögum, og
reglugerð fyrir námsbrautina hefur ekki
verið sett. Tillögur háskólaráðs til laga-
breytinga hafa verið sendar til ráðuneytisins
og tillögur um reglugerð fyrir námsbrautina
eru til meðferðar í háskólanum. Nokkur
tími mun líða þar til þær verða endanlega
afgreiddar í háskólaráði, þar sem hyggja
verður að mörgum atriðum sem einnig
geta haft þýðingu fyrir aðrar námsbrautir
sem verið er að undirbúa. Háskólaráð telur
að ekki sé rétt að fara af stað með umrætt
viðbótarnám hjúkrunarkvenna á mennta-
skólastigi fyrr en reglugerð fyrir námsbraut
í hjúkrunarfræðum hefur verið sett, en
ráðið telur jafnframt að til greina komi að
stofna til slíks náms síðar og fellst í megin-
atriðum á tillögur Tengslanefndar í því
efni." 3. október 1974.
9. Erfóafræöistofnun Háskóla íslands
Lögð fram drög að reglugerð fyrir Erfða-
fræðistofnun Háskóla íslands.
Þorkell Helgason, Þórður Eydal Magnússon,
Sigurjón Björnsson, Erling Ólafsson og
Þorsteinn Magnússon óskuðu eftirfarandi
bókunar:
„Þar sem hvorki hefur verið leitast við
að kanna samruna Erfðafræðinefndar há-
skólans og Mannfræðistofnunar Háskóla ís-
lands, né leitað eftir umsögn þeirra aðila,
er málið kynni að varða ellegar að upplýs-
inga væri að leita hjá, sitjum við hjá við
endanlega afgreiðslu málsins."
Eftirfarandi tillaga var samþykkt einróma:
„Háskólaráð leggur á það áherslu, að
Mannfræðistofnun og Mannerfðafræðistofn-
un hafi samvinnu sín á milli, m.a. til þess
að forðast of mikla skörun verkefna. Ráðið
felur rektor að hafa frumkvæði að því, að
til slíkrar samvinnu verði stofnað. Einnig
verði tekin til athugunar í því sambandi
hugsanleg tengsl þessara stofnana við ein-
stakar deildir háskólans." 1. júlí 1975-
III. Próf og kennsla
Prófafyrirkomulag
I nefnd til þess að kanna möguleika a
lækkun prófkostnaðar við Háskóla íslands
m.a. með breyttu prófdómarafyrirkomulagi
og breyttri tilhögun prófa, var auk háskóla-
ritara kjörinn prófessor Guðmundur Magn-
ússon. 16. janúar 1975-
IV. Fjármál og húsnæSismál
Tækjakaupafé
Lagt var til að úthluta 20 milljónum krona
þannig:
Verkfræði- og raunvísindad. 10 millj-
Læknadeild ............... 5 '—'
Heimspekideild ........... 1,5 ‘
Tannlæknadeild............ 0,75 ■ '
Aðrir .................... 2,7 5 ■
3. apríl 1975-