Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Blaðsíða 340
Lög um Háskóla íslands
338
Enn fremur skal leita umsagnar stjórnar í
deildarfélagi stúdents, áður en brottrekstur
er ráðinn samkvæmt 2. málsgrein.
Brottrekstur skal þegar í stað tilkynna
menntamálaráðuneytinu.
Stúdent er heimilt að skjóta úrskurði
háskólaráðs til Hæstaréttar eftir reglum um
kæru í opinberum málum innan 4 vikna
frá því, að honum barst tilkynning um
úrskurðinn. Kæra frestar framkvæmd úr-
skurðar, en stúdent má þó ekki ganga undir
próf, fyrr en úrlausn Hæstaréttar er fengin.
Nú tekur stúdent sig á, og er háskólaráði
þá heimilt að fella brott fyrri úrskurð um
brottrekstur.
25. gr.
Nú er hafin réttarrannsókn gegn skrásettum
háskólastúdent fyrir háttsemi, sem talin er
varða við almenn hegningarlög, og skal
dómari þá tilkynna það rektor þegar í stað.
Rektor eða fulltrúa hans er heimilt að vera
viðstaddur dómþing, þegar svo stendur á.
Nú verður skrásettur stúdent sekur að
lagadómi um verk, sem svívirðilegt er að
almenningsáliti, og er hann þá rækur.
26. gr.
Afskipti háskólans af háskólastúdent hætta,
er stúdent lýkur fullnaðarprófi í grein sinni
eða prófi, er sérstakur lærdómstitill er við
tengdur, enda haldi hann ekki áfram
óslitið námi í grein sinni til æðri prófstiga.
Nú tilkynnir stúdent, að hann sé hættur
námi við háskólann, og skal þá má nafn
hans af stúdentatali skólans. Nú er mælt
fyrir um, að stúdentar skuli skrá sig til
náms hvert háskólaár, sem þeir stunda nám
við skólann, og falla þeir þá niður af
stúdentatali, ef þeir láta ekki skrá sig til
náms. Þá skal má nafn stúdents af stúdenta-
tali skólans, hafi hann ekki stundað nám
við háskólann í tvö kennslumisseri sam-
fleytt, eftir því sem þær kröfur um náms-
ástundun eru greindar í reglugerð fyrir
skólann í heild eða einstakar námsgreinir.
Nú hefur stúdent gert háskóladeild sinni
viðhlítandi grein fyrir fjarvistum, og skal
þá ekki má nafn hans af stúdentaskrá, þótt
hann sæki ekki háskólann allt að fjögur
misseri, enda skrái hann sig í árlegri skrán-
ingu.
V. KAFLI
Próf
27. gr.
I reglugerð háskólans skal setja ákvæði um
prófgreinar, próftíma, skiptingu fullnaðar-
prófs í fleiri en einn hluta, undirbúnings-
próf, einkunnir og annað, er að prófunum
lýtur.
Heimilt er í reglugerð að kveða á um
hámarkstímalengd í námi eða einstökum
hiutum þess og um afleiðingar, ef þeim
ákvæðum er ekki fullnægt.
Nú stenzt stúdent ekki próf, gengur frá
því, eftir að hann hefur byrjað próf, eða
kemur ekki til prófs og hefur ekki boðað
forföll, og er honum þá heimilt að þreyta
prófið að nýju innan árs. Háskóladeild
getur þó veitt undanþágu frá ákvæðum
þessarar málsgreinar, ef sérstaklega stendur
/
a.
I reglugerð má mæla fyrir um rétt
manna, sem staðizt hafa próf, til að endur-
taka prófið.
28. gr.
Háskólakennarar standa fyrir prófum, en
hver deild ræður tilhögun prófa hjá sér,