Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Blaðsíða 106
VerkfræSi- og raunvísindadeild og fræSasvið hennar
104
3. að afla upplýsinga um magn og tegundir
vissra varhugaverðra efna í matvælum,
t.d. rotvarnarefna, litarefna og fituefna
sem framleidd eru úr jurtum eða með
herslu á fiskolíum.
Snefil- og steinefnarannsóknir
í mönnum og dýrum
Tilgangur þessa verkefnis er að afla
upplýsinga um magn snefilefna og stein-
efna í mönnum og dýrum á Islandi.
Þungamálsmengun fer vaxandi víða og
berast málmar í menn og dýr með matvæl-
nm, vatni og jafnvel lofti.
Karbósílanar
Rannsökuð hafa verið kisilsambönd þar
sem kolefnis- og kísilfrumeindir skiptast á
í grind þeirri sem myndar sameindina.
Undirstöðurannsóknir sem þessar gegna
tvíþættu hlutverki: a) þær auka þekkingar-
forða á sviði efnafræði, b) þær bæta og
skerpa þjálfun vísindamannsins, bæði sem
vísindamanns og sem kennara.
Þjónustuverkefni
Þjónustuverkefni hafa verið unnin fyrir
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar og
ýmsa aðila í matvælaiðnaði, t.d. rannsóknir
á mjólk og mjólkurafurðum, smjörlíki og
öðru feitmeti, kjöti og afurðum úr kjöti,
ávaxtadrykkjum o.fl.
Fjármál
Efnafræðistofa Raunvísindastofnunar há-
skólans nýtur fjárframlags á fjárlögum.
Aðrar tekjur hennar eru:
1) Tekjur fyrir þjónustustörf. 2) Styrkir:
a) frá American Medical Association, b)
frá NATO og c) úr Vísindasjóði.
4. JarSvísindastofa
Rannsóknastofa í jarðvísindum skiptist i
þrjár deildir: jarðfræðideild, háloftadeild
og jarðeðlisfræðideild.
a) Jarðfræöideild
Jarðfræðideild hefur til umráða þriðjung
Jarðfræðahúss háskólans á móti jarðfræði-
skor verkfræði- og raunvísindadeildar og
Norrænu eldfjallastöðinni. (Áður var þat
Atvinnudeild háskólans.) Starfsmenn deild-
arinnar eru fastráðnir kennarar og sérfræð-
ingar Raunvísindastofnunar háskólans a
sviði jarðfræði og bergfræði auk aðstoðar-
manns, stúdenta og skrifstofufólks. For-
stöðumaður jarðvísindastofu er Sigurður
Þórarinsson prófessor.
Starfsmenn jarðfræðideildar annast und-
irstöðurannsóknir í:
— berg- og jarðefnafræði,
— eldfjallafræði,
— jarðsögu og steingervingafræði.
Á þessum sviðum störfuðu 1973—1974
auk forstöðumanns þrír sérfræðingar Raun-
vísindastofnunar háskólans, einn aðstoðar-
og tæknimaður, einn ritari og fjórir stúd-
entar um sumartímann. 1974—1975 var
starfsliðið auk forstöðumanns: tveir fast-
ráðnir kennarar, einn sérfræðingur Raun-
vísindastofnunar háskólans, einn aðstoðar-
maður, einn ritari og fjórir stúdentar urn
sumartímann. Auk þess unnu þrír stúdentar,
sem voru við framhaldsnám, að verkefnum
sem greidd voru af Gosefnanefnd iðnaðar-
ráðuneytisins.
Rannsóknarverkefni
Berg- og jarðefnafrœði:
— Berg- og jarðefnafræði íslensku gos-
beltanna. (Unnið í samvinnu við Nor-
rænu eldfjallastöðina.)