Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Page 214
KAFLAR ÚR GERÐABÓKUM HÁSKÓLARÁÐS___________
Úr gerSabókum háskólaráðs háskólaárið 1975—1976
212
I. RektorsembættiS og stjórn háskólans
Rektorskjör voriS 1976
í kjörstjórn til þess að sjá um rektorskjör
voru valdir Jóhannes L. L. Helgason að-
júnkt sem formaður kjörstjórnar, Guðrún
Erlendsdóttir aðjúnkt, Halldór Guðjónsson
kennslustjóri, Erla Eliasdóttir aðstoðarhá-
skólaritari, Einar Sigurðsson háskólabóka-
vörður, Gylfi Kristinsson laganemi og Val-
geir Pálsson laganemi.
Á fundi í apríl skýrði rektor frá því að
líkur bentu til að frumvarp til breytingar
laga um Háskóla íslands yrði ekki afgreitt
á Alþingi fyrr en um miðjan maí. Ákveðið
var að rektorskjör skyldi fara fram mánu-
daginn 3. maí n.k. kl. 17.00 samkvæmt
þeim lögum sem nú gilda. Rektor vék af
fundi meðan fjallað var um mál þessa dag-
skrárliðar.
Ár 1976, mánudag 3. maí kl. 17, fór fram
kosning rektors fyrir tímabilið 15. septem-
ber 1976 til 15. september 1979. Á kjör-
skrá voru 145, þ.e. 125 háskólakennarar og
20 fulltrúar stúdenta. Kjörfund sóttu 84,
þ.e. 67 háskólakennarar og 17 fulltrúar
stúdenta. Auk þess höfðu kosið utan kjör-
fundar 14 háskólakennarar og 2 fulltrúar
stúdenta. Alls greiddu því atkvæði 100
manns, þ.e. 81 háskólakennari og 19 full-
trúar stúdenta.
Formaður kjörstjórnar gerði í upphafi kjör-
fundar grein fyrir helstu ákvæðum háskóla-
laga um rektorskjör. Að því búnu var geng-
ið til atkvæða og féllu þau sem hér greinir:
Prófessor Guðlaugur Þorvaldsson 96 atkv.
Prófessor Sigmundur Guðbjarnason 2 atkv.
Prófessor Bjarni Guðnason 1 atkv.
Einn seðill var auður.
Þar eð fullnægt var því ákvæði 4. gr. há-
skólareglugerðar að sá sé „rétt kjörinn rekt-
or, sem hlotið hefur atkvæði meiri hluta
atkvæðisbærra manna, enda hafi minnst
tveir þriðju hlutar þeirra, sem atkvæðisrett
eiga, tekið þátt í atkvæðagreiðslunni," lýsti
formaður kjörstjórnar Guðlaug Þorvaldsson
prófessor rétt kjörinn rektor Háskóla ís-
lands frá 15. september 197’6 til jafnlengd-
ar 1979.
Hinn nýkjörni rektor ávarpaði síðan fund-
armenn, þakkaði kennurum, starfsliði og
stúdentum gott samstarf á undanförnum
árum og óskaði þess að framhald mætti a
því verða á komandi kjörtímabili. Formað-
ur kjörstjórnar sagði síðan kjörfundi slitið
kl. 17.45. Kjörfundurinn fór fram í Tjarn-
arbæ.
Tölvumál háskólans
Bréf Odds Benediktssonar, forstöðumanns
reiknistofu R.H. um framtíðartölvukost
verkfræði- og raunvísindadeildar.
Á fundinum höfðu verið boðaðir sérstaklega
til þess að taka þátt í umræðum um þennan
dagskrárlið Guðmundur Magnússon pr0'
fessor, Jón Þór Þórhallsson deildarstjóri,
Maggi Jónsson byggingastjóri, Oddur Bene-
diktsson dósent og Sveinbjörn Björnsson
formaður stjórnar R.H.
Rætt var um tölvubúnað og tækjakost,
húsnæði fyrir nýja tölvu og form á rekstn-
Lagðar voru fram nýjar tillögur að regln'
gerð fyrir Reiknistofnun háskólans.
5. febrúar 1976.
Guðlaugur Þorvaldsson rektor skýrði frá þy>
að hinni nýju tölvu háskólans hefði veri
fundinn staður í húsi verkfræði- og raun-
vísindadeildar, en fengið hefði verið ley 1
byggingarnefndar Reykjavíkur til að reisa