Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Side 333
LÖG UM HÁSKÓLA ÍSLANDS
331
NR. 84/1970 MEÐ SÍÐARS BREYTINGUM
I. KAFLI
Hlutverk Háskóla íslands
1. gr.
Háskóli Islands skal vera vísindaleg rann-
sóknarstofnun og vísindaleg fræðslustofn-
un, er veiti nemendum sínum menntun til
þess að gegna ýmsum embættum og störf-
um í þjóðfélaginu og til þess að sinna
sjálfstætt vísindalegum verkefnum.
II. KAFLI
Stjórn háskólans
2. gr.
[Stjórn háskólans er falin háskólaráði,
rektor, háskólaritara og kennslustjóra].1)
Háskólaráð hefur, svo sem lög mæla og
nánar segir í reglugerðum, úrskurðarvald í
málefnum háskólans og háskólastofnana og
vinnur að þróun og eflingu þeirra.
Rektor er yfirmaður stjórnsýslu háskól-
ans og er æðsti fulltrúi hans gagnvart
mönnum og stofnunum innan háskólans
og utan. Hann hefur almennt eftirlit með
starfsemi háskólans og vinnur sérstaklega
að mörkun á heildarstefnu í málefnum
stofnunarinnar.
[Háskólaritari og kennslustjóri hafa eft-
irlit með daglegri starfsemi háskólans. Þeir
hlutast til um framkvæmd á samþykktum
háskólaráðs og háskóladeilda og þeim
ákvörðunum stjórnvalda sem varða háskól-
ann. Háskólaritari hefur í umboði rektors
og háskólaráðs heimild til að skuldbinda
háskólann og háskólastofnanir fjárhagslega,
hefur yfirumsjón með gerð fjárhagsáætlun-
ar háskólans og framkvæmd hennar sam-
kvæmt fjárlögum og hefur umsjón með
sjóðum hans. Kennslustjóri annast í umboði
rektors og háskólaráðs málefni, er snerta
kennslu og kennara, húsnæði háskólans og
búnað] d)
Rektor, háskólaritari [eða kennslu-
stjóri]1) leysa úr þeim málum, sem þurfa
ekki að koma fyrir háskólaráð, háskóla-
deildir eða stjórnvöld af laganauðsyn eða
samkvæmt venju.
Áður en lögum, er snerta háskólann eða
háskólastofnanir, verður breytt eða við þau
aukið, skal leita umsagnar háskólaráðs um
breytingar eða viðauka, svo og um nýmæli.
Nú varðar málefni sérstaklega tiltekna deild,
og skal háskólaráð þá leita álits deildarinn-
ar, áður en það lætur uppi umsögn sína.
Háskólinn á stjórnarfarslega undir
menntamálaráðherra.
3. gr.
[Rektor er kjörinn til þriggja ára í senn,
og eru skipaðir prófessorar einir kjörgengir.
Atkvæðisrétt eiga prófessorar, dósentar og
lektorar og allir þeir, sem fastráðnir eru eða
settir til fulls starfs við háskólann og stofn-
anir hans og hafa háskólapróf. Þá eiga allir
stúdentar, sem skrásettir eru í Háskóla ís-
lands tveim mánuðum á undan rektorskjöri,
atkvæðisrétt. Greidd atkvæði stúdenta skulu
gilda sem einn þriðji hluti greiddra atkvæða
alls, en greidd atkvæði annarra atkvæðis-
bærra aðila skulu gilda sem tveir þriðju
hlutar greiddra atkvæða alls].2)
[Rektorskjör fer fram í aprílmánuði, en
rektor tekur við störfum með byrjun há-
skólaárs].2)
[Sá er rétt kjörinn rektor, sem hlotið
hefur meiri hluta greiddra atkvæða, sbr. 1.
1) 1. nr. 3, 17. febrúar 1975.
2) I. nr. 45, 25. maí 1976.