Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Side 127
námsbraut í hjúkrunarfræði
125
Inngangur
Námsbraut í lijúkrunarfræði tók til starfa
við Háskóla íslands haustið 1973. Undir-
búningur að stofnun hennar fór fram á
árunum 1969—1973. Að þeim undirbún-
Ingi stóðu, auk háskólans, yfirvöld mennta-
°S heilbrigðismála, félagssamtök hjúkrun-
arf.ræðinga og lækna og hjúkrunarmála-
deild Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (W.
bf-O.) f Kaupmannahöfn, sem veitti sér-
frasðilega aðstoð, fjárhagslegan stuðning og
aðra fyrirgreiðslu.
brjár nefndir, skipaðar af menntamála-
raðuneytinu, auk nokkurra undirnefnda,
bafa starfað að undirbúningi og skipulagn-
lngu námsbrautarinnar.
Eftirtaldir erlendir sérfræðingar í hjúkr-
Unarmálum hafa dvalið hér um lengri eða
skemmri tíma:
1. María P. Tito de Moraes, framkvæmda-
st)ori hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni í
Kaupmannahöfn, árið 1970. Hann kom
b>ngað að beiðni landlæknis til ráðgjafar
vegna skorts á hjúkrunarkennurum.
2- Dr. Vera Maillart, fulltrúi hjá Alþjóða-
neubrigðisstofnuninni í Kaupmannahöfn,
arið 1972 til ráðgjafar um nám í hjúkrun-
arfræði í háskóla.
3- Dorothy C. Hall, framkvæmdastjóri
rjúkrunarmáladeildar Alþjóðaheilbrigðis-
st°fnunarinnar í Kaupmannahöfn, árin
1973, 1974 og 1975 til ráðgjafar um
skipulagningu og starfrækslu námsbrautar
1 bjúkrunarfræði við Háskóla íslands.
*■ Anna T. Howard, prófessor við The
niversity of Boston í Bandaríkjunum,
1 skipulagningar á námsskrá, einkum í
úukrunargreinum. Hún var hér um
tVc'ggja mánaða skeið árið 1974 og vann
03serstakri námsskrárnefnd.
5. líeather F. Clarke, prófessor við Thc
University of Columhia í Vancouver í
Kanada. Hún dvaldi hér um sex vikna
skeið árið 1975 og sá um námskeið fyrir
hjúkrunarkennara námsbrautarinnar. Hún
kom aftur vorið 197'6 og kenndi fyrst
nemendum á 3. ári heilsuvernd/heilsu-
gæslu og síðan hjúkrunarkennurum ýmsar
nýjar kennsluaðferðir varðandi klíniska
kennslu á heilbrigðisstofnunum.
Stjórnun
Tillögur að reglugerð fyrir námsbrautina
eru í undirbúningi hjá háskólaráði, og
gert er ráð fyrir að reglugerð verði stað-
fest á þessu ári (1976).
Námsbrautin lýtur sérstakri námsbrautar-
stjórn sem skipuð var til bráðabirgða af
menntamálaráðherra. í henni eiga sæti full-
trúar mennta- og heilbrigðismálaráðuneyta,
háskólaráðs, læknadeildar, Hjúkrunarfélags
Islands og nemenda. Með stjórninni starfar
sérstakur kennslustjóri.
Námstilhögun
Til B.S.-prófs í hjúkrunarfræði skal nem-
andi ljúka námskeiðum og prófum er þeim
fylgja sem nema 120 námseiningum hið
minnsta. Náminu er skipt í fyrri hluta og
síðari hluta og hverju námsári í haust- og
vormisseri. Áætlaður námstími er 4 ár, og
gert er ráð fyrir að á hverju misseri sé hægt
að Ijúka 15 einingum. Að baki hverrar
einingar skal að jafnaði vera a. m. k. ein
vikuleg misseriskennslustund eða ein náms-
vika. Hámarksnámstími er 6 ár.
Námsgreinar samkv. kennsluskrá há-
skólaársins 1976—1977 verða sem hér
segir: