Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1976, Side 342
Lög um Háskóla íslands
340
34. gr.
Hver sá, er hlotið hefur doktorsnafnbót frá
háskólanum, á rétt á að halda þar fyrir-
lestra í vísindagrein sinni, en tilkynna verð-
ur hann það háskólaráði.
Nú þykir doktor misbeita þessum rétti
sínum, og getur þá háskólaráð svipt hann
réttinum.
35. gr.
Háskólaráð getur ákveðið í samþykkt sam-
kvæmt tillögum háskóladeildar, að heimilt
sé að ganga undir meistarapróf í grein, að
loknu embættis- eða kandídatsprófi. Prófið
er fólgið í samningu ritgerðar eða ritgerða,
og má áskilja, að umsækjandi gangi einnig
undir munnlegt próf í tilteknum greinum
og haldi opinbera fyrirlestra. Ritgerð skal
skila til þeirrar háskóladeildar, sem í hlut á.
Nánari reglur um meistarapróf skal setja
í reglugerð.
VII. KAFLI
Stofnanir háskólans og eigur hans
36. gr.
Háskólaráð hefur yfirumsjón með einstök-
um háskólastofnunum, svo sem háskóla-
bókasafni^ fyrirtækjum háskólans, svo sem
happdrætti og kvikmyndahúsi, og með sjóð-
um skólans og öðrum eigum.
Forseti íslands veitir embætti háskóla-
bókavarðar að fengnum tillögum háskóla-
ráðs. Háskólabókavörður skal hafa sérþekk-
ingu í bókasafnsfræðum. Nú kennir há-
skólabókavörður bókasafnsfræði við háskól-
ann, og tekur hann þá sömu laun og próf-
essorar. Háskólaráð ræður annað starfslið
bókasafns eftir því, sem fé er veitt til á
fjárlögum.
Háskólaráð setur einstökum fyrirtækjum
háskólans samþykktir.
Um stjórn sjóða fer eftir því, sem stofn-
skrár eða aðrar samþykktir mæla fyrir um.
Um tengsl tilraunastöðvar háskólans í
meinafræði við háskólann fer eftir því, sem
segir í lögum nr. 11, 28. febr. 1947.
VIII. KAFLI
Kennaraembætti og kennarastöður við
Háskóla íslands
37. gr.
Við Háskóla Islands eru þessi prófessors-
embætti:
a) í guðfræði 4, b) í læknadeild 16, c) í
lagadeild '6, d) í heimspekideild 14, og er
eitt þeirra embætti forstöðumanns Hand-
ritastofnunar Islands, sbr. lög nr. 36, 18.
apríl 1962, 6. gr., e) í verkfræði- og raun-
vísindadeild 6, f) í viðskiptadeild 4.
Ný prófessorsembætti verða stofnuð með
lögum eða með ákvörðun menntamálaráð-
herra, að fengnum tillögum háskólaráðs og
háskóladeildar, þegar fé er veitt til á fjár-
lögum.
I reglugerð skal kveða á um, hverjar að-
alkennslugreinar teijist til hvers prófessors-
embættis um sig.
Nú óskar skipaður prófessor eftir því,
að aðalkennslugrein hans verði breytt, er
prófessorsembætti verður laust í deild hans,
og getur menntamálaráðherra þá heimilað
breytinguna, ef deild sú, sem í hlut á, fellst
á tilmæli prófessorsins.
Stofna skal við Háskóla Islands prófess-
orsembætti í ættfræði, sem tengt sé við nafn
Einars Bjarnasonar, ríkisendurskoðanda.
Prófessorinn skal taka við störfum ævi-
skrárritara samkv. lögum nr. 30, 24. marz