Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1987, Page 12
2
Ræður rektors Háskóla fslands
Stefnumið og viðfangsefni næstu ára
Ræða flutt við rektorsskipti 15. september 1985u
Æskilegt er að nýkjörinn háskólarektor
geri stuttlega grein fyrir þeim málum sem
hann mun leggja sérstaka áherslu á í starfi
sínu. Mörg verkefni eru þess eðlis að þau
verða aldrei leyst til fullnustu. Slík verkefni
eru barátta fyrir bættri starfsaðstöðu,
meira og betra húsnæði, auknum mannafla
og aukinni rekstrarfjárveitingu. Mun ég,
líkt og fyrirrennarar mínir í rektorsstarfi,
leitast við að mæta þeim þörfum eftir því
sem unnt er hverju sinni.
Þau viðfangsefni sem ég mun leggja
mikla áherslu á eru einkum þrjú:
í fyrsta lagi endurskoðun á mennta-
stefnu háskólans, þ.e. athugun á leiðum til
að efla menntun í landinu, bæði undir-
stöðumenntun og æðri menntun.
í öðru lagi endurskoðun á vísindastefnu
háskólans, þ.e. áætlanir og aðferðir sem
efla vísindarannsóknir og hagnýtingu tækni
og vísinda í þágu samfélagsins.
I þriðja lagi kynning á starfsemi háskól-
ans, þ.e. að veita almenningi tækifæri til að
sjá og kynnast starfsemi háskólans og veita
skattborgurum þannig aukinn skilning á
mikilvægi menntunar og vísinda í daglegu
lífi okkar. Þar að auki er nauðsynlegt að
efla stjórnsýslu háskólans og endurskoða
stjórnun byggingarmála.
Hver eru markmiðin með slíkri endur-
skoðun? Meginmarkmiðin eru einkum
fimm:
1. Leitast við að tryggja gœði háskóla-
kennslu
Markmið háskólakennslu er að veita víð-
tæka og góða menntun, bæði almenna og
sérhæfða menntun, og þjálfun á ákveðnum
fræðasviðum. Stefnan er sú að námsefni og
kennsla veiti breiðan grundvöll og undir-
stöðuþekkingu í viðkomandi fræðigrein og
þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum. Við
verðum að mæta kröfum hliðstæðra há-
skóla erlendis.
Hraðar framfarir og breytingar í mörg-
um fræðigreinum gera auknar kröfur til há-
skólans. Víðtæk endurskoðun námsefnis
og kennsluhátta einstakra deilda og náms-
brauta á 10-15 ára fresti er æskileg og stuðl-
ar að því að háskólinn uppfylli þær kröfur
sem gera verður á hverjum tíma. Slíka end-
urskoðun þarf að gera nú af sérfræðingum
innan háskólans og utan, sem jafnframt
gera tillögur til úrbóta ef þurfa þykir. Eitt
af erfiðustu vandamálum allra háskóla er
baráttan við stöðnun, og eru slíkar úttektir
áhrifamiklar í þessari viðleitni.
Til að stuðla að innstreymi nýrra hug-
mynda og faglegri gagnrýni er æskilegt að
fjölga skammtímastöðum, en í þær væru
einkum ráðnir ungir sérfræðingar sem
tækju bæði þátt í kennslu og rannsóknum.
Yrði ráðið í slíkar stöður til þriggja ára í
senn.
Önnur leið er t.d. að ráða til kennslu
1) Sjá Árbók Háskóla íslands 1984-1985, bls. 188-189.