Búnaðarrit - 01.01.1919, Qupperneq 32
26
BÚNAÐAKRIT
bætt, og er þar nú eitthvert besta áveituengið í Skaga-
firði. — Annars eru þarna í Staðarhreppi áveitur á Haf-
steinsstöðum, Vík, Ögmundarstöðum, og Hóli og Dúki i
Sæmundarhlíð.
í þessari sveit eru víða all-góð flæðilönd. Hjeraðs-
vötnin flæða þar yfir í vatnavöxtum og leysingum, og
gera góðan grasvöxt, en blautar engjar. Á það einkum
við um jarðirnar á Langholtinu.
í Hegranesinu hafa sumstaðar verið gerðir flóðgarðar
til þess að halda inni flæðivatni úr Hjeraðsvötnum, enda
eru þar góðar engjar, einkum í Ási.
Á Hellulandi er vatni veitt á með vindniylnu. Var
byrjað á þvi vorið 1913, en áveTan — vjelaútbúnaður-
inn — endurbætt 1915, og gefst vel1). Áveitusvæðið er
um 30 — 40 hektarar, og kostnaðurinn við verkið var
um 1200 kr.
í Lýtingsstaðahreppi er áveita á Álfgeirsvöllum (úr
Jæk), Mælifelli, Lýtingsstöðum, Mælifellsá og Nautabúi
(úr Svartá), Vindheimum (úr Hjeraðsvötnunum), Reykja-
völlum, Dalsplássinu o. s. fiv.
Austan Hjeraðsvatna (í Akrahreppi) er áveita á Viði-
völlum, Hjaltastöðum og Prostastöðum. — í Viðvíkur-
sveitinni eru flæðiengjar á sumum jörðum (Hofsstaða-
plássinu, Lóni, Vatnsleysu og víðar). Áveita er í Kýrholti
og Larighúsum.
Á Hólum í Hjaltadal er veitt á, bæði úr Hjaltadalsá,
Hofsá og Viðinessá. Hefir áveitan þar verið aukin og bætt
síðustu árin, og mega nú teljast góðar engjar á Hólum.
Á Bæ í Hofshreppi er góð áveita.
Á Skíðastöðum í Laxárdal, bak við Tindastól, hefir
Jengi ver ð veitt á, og er gert enn. Eru þar góðar engjar.
Einnig er þar í dalnum áveita í Hvammi og Hafragili.
1) Áveitu-útbúnaði þessum er- nánar lýst í „Ársriti Rækt-
uuarfjelags Norðurlauds11 1915, 12. árg., bls. 71—72, og í „Frey“
XI., 1914, bls. 31 og XIII., 1916, bls. 14.