Búnaðarrit - 01.01.1919, Blaðsíða 93
BtfNAÐARRIT
83
Af þrevetru folunum voru veitt 2. verðl. fyrir 3, og
3. verðl. fyrir aðra 3. Og af hryssunum fengu 11 önnur
verðl. og 26 þriðju verðlaun.
Fyrstu verðl. voru ekki veitt, og olli því meðfram það,
hvað sýningin hafði lítið fje til umráða.
Hrossaræktarfjelagið „Atli“ í Ásahreppi fjekk 2. verðl.
fyrir Bleik sinn, 10 vetra gamlan, 141 cm. á hæð. Var
það í fjórða skifti, sem hann hefir verið sýndur og
hlotið verðl., og oftast 1. verðlaun.
Hrossaræktarfjelag Vestur-Eyjafjallahrepps fjekk einnig
2. verðl. fyrir kynbótahest sinn, Hjeðinn, 9 vetra, 136
cm. á hæð. Það var einnig í fjórða skifti sem þessi
hestur var sýndur, og hlotið verðlaun.
Um þessa hesta vísast að öðru leyti til „Búnaðar-
ritsins", 32. árg. 1918, bls. 58—60.
Hrossaræktarfjelag Austur-Landeyinga fjekk ennfremur
2. verðl. fyrir sótrauðan hest — Dumbur — 5 vetra, 137
cm. á hæð, og 153 cm. að gildleika. Hesturinn er ætt-
aður frá Hólmum í A.-Landeyjum, og keypti fjelagið
hann í fyrravor. Er það íallegur hestur og af góðu
bergi brotinn.
Hrossaræktarfjelag Villingaholtshrepps fjekk og 2. verðl.
fyrir kynbótahest sinn, Mósa, 6 vetra, 136 cm. á hæð,
og 156 cm. að gildleika. Hann er ættaður frá Hnausum
i Húnavatnssýslu, út af hestakyni Magnúsar Steindórs-
sonar, er þar bjó lengi. Hesturinn er fríður mjög, hvar
sem á hann er litið, og vel gerður.
Af öðrum hestum, er veitt voru 2. verðl., skal jeg
ennfremur nefna rauðnösóttan hest frá Hemlu, 7 vetra,
140 cm. á hæð og 150 cm. að gildleika, og móálóttan
hest frá Hól i Út-Landeyjum, 6 vetra, 136 cm. á hæð,
og 156 cm. að gildleika. — Báðir þessir hestar eru fall-
legir og af góðu kyni, og sá móálótti hefir flesta kosti
sem reiðhestur.
Hrossaræktai fjelagið „Valur", sem tekur yfir 3 hreppa
— Eyrarbakka-, Sandvíkur- og Stokkseyrar hreppa — í
6*