Búnaðarrit - 01.01.1919, Blaðsíða 36
30
B'ÚNAÐARRIT
í Fnjóskadálnum er veitt á á Belgsá, Reykjum, Brúna-
gerði, Fjósatungu, Steinkirkju, Böðvarsnesi og Drafla-
stöðum. Og í Höfðahverfi er áveita á Giýtubakka, Nesi,
Hóli, Hvammi og víðar, og Kaðalstöðum í Fjörðum.
í norðursýslunni er aftur á móti næsta lítið um
áveitur. í Axarfirðinum eru flæðilönd, eins og áður er
getið. — Áveita er í Garði í Kelduhverfi, og einum eða
tveimur bæjum öðrum þar. Sömuleiðis er uppistöðu-
áveita á Ærlæk í Axarflrði. Og í Núpasveit er áveita á
Brekku, Daðastöðum og Núpi. — í Þistilfirðinum er
áveita á Gunnarsstöðum, en á aðrar jarðir þar er
mjer ekki kunnugt um að veitt sje á.
Húlasýslur. Á Skjalaþingsstöðum í Vopnafirði
er góð áveita, gerð 1906. — Á Fljótsdalshjeraði er á-
veita á Hallfreðarstöðum (seitluáveita), Egilsstöðum úr
Eyvindará, Ketiisstöðum úr Grímsá, Vallanesi, Eiðum
(á Eiðablá úr Gilsá), og Ormsstöðum í Ormsstaðadal.
í Fljótsdal er áveita á Melum, Bessastöðum, Ham-
borg og Skriðuklaustri úr Bessastaðaá, og svo á Val-
þjóísstað. Á Valþjófsstaðanes var byrjað að veita á um
miðja síðastliðna öld. Nesið er fremur jafnlent og vel
fallið til áveitu. Áveituvatnið er tekið úr Jökulsá.
í Tungu í Fáskrúðsfirði er áveita á svonefnt Tungunes.
Á Desjamýri í Borgarfirði gerði áveitu sjera Sigurður
Gunnarsson eldii, prófastur, um 1850, og hjelst hún við
meðan hann var þar1), en lagðist svo niður.
Auk þessa, sem hjer hefir verið nefnt, eru í ýmsum
sveitum landsins smá-áveitur, og þá helst seitluveitur,
ljBonedikt Blöndal búfrœðiskandídat, sem gefið hefir
mjer upplýsingar um áveitur i Múlasýslunum, hofir sagt mjer,
að meðan sjera Sigurður Gunnarsson var á Desjamyri, hafi hann
sljettað þar töluvert í túninu. Hann ílutti þaðan 1861. En frá
þeim tíma og fram að 1914 hafi ekki verið hreyft þar við einni
þúfu. — Nú er ungi presturinn þar, sjera Vigfús Ingvar Sig-
urðsson, tokinn ti) að sljeita.