Búnaðarrit - 01.01.1919, Blaðsíða 88
78
BÚNAÐARRIT
ekki ber að nota ung kvendýr til undaneldis (hryssur
4—5 vetra, kýr 2 ára, ær 2 ára).
Þó nú notkun á unga aldri kippi nokkru úr vexti
karldýranna, þá má, ef þau eru lítið notuð, gefa þeim
það betur að þess gæti ekkert. En viö J>að að nota þau
ung vinst reynsla. Jeg liefi áður bent á, að enginn er
sá maður hjer á jörð, sem geti sagt með því að sjá
undaneldissJcepnu, hvort lmn er góð eða ekki.
Af œttartólubókuni má nokkuð sjá þetta, og maður
með sjerþekkingu mun geta giskað rjett á þetta oftast
eftir þeim, en þó stundum skjátlast.
En reynslan er óyggjandi dómari. Þess vegna er mjög
mikils vert að fá hana sem fyrst, þvi hvert ár sem
skepnan er notuð getur orðið dýrt, sje hún slæm, og
ætíð notast betur að skepnunni, eftir að reynslan er
fengin, og hún því vel þekt.
Hjá hestum og nautum, þar sem bíða þarf í 4—5 ár
eftir reynslunni, er sjerstaklega áríðandi að nota nautið
eða folann strax og hægt er, handa fáum kúm eða hryss-
um, svo sýnishorn af reynslunni fáist sem allra fyrst.
En jafnframt þvi sem þetta er gert, þarf að gefa skepn-
unni betur, svo hún missi helst einskis í við notkunina.
Mars 1917.