Búnaðarrit - 01.06.1926, Síða 220
3B8
BÚNAÐARRIT
sem um jarðhita er að ræða. Jeg er helst á því, að hin
Dýju gróðurhús, sem nú hafa verið bygð, muni marka
tímamót í sögu ísl. garðyrkju. Þá er garðyrkjan orðin
sjálfstæð atvinnugrein, þegar hægt er að stunda ræktun-
ina bæði sumar og vetur.
Meðan jeg var í Danmörku, veitti hr. Klemens Kr.
Kristjánsson Gróðrarstöðinni forstöðu fyrir mig, og kann
jeg honum bestu þökk fyrir. En sumarið var mjög vot-
viðrasamt og með allra versta móti að fást við eyðingu
illgresis.
Er jeg kom heim úr utanförinni, beið mín ærið starf,
því þá skömmu eftir byrjaði uppskeran, en 'að henni
varð mjög seinunnið, vegna hinna sífeldu votviðra.
Fyrirlestra-ferðir hefi jeg engar farið á þessu ári.
Ragnar Ásgeirsson.
Nautgriparæktar-ráðunauturinn:
Eins og kunnugt er, andaðist Sigurður Sigurðsson,
ráðunautur, snemma á þessu ári, og hafði þá legið
rúmfastur frá því í september síðastl. Liggur því eigi
fyrir nein skýrsla frá honum. En hjer skal gefið að eins
örstutt yfirlit yfir helstu störf hans á árinu 1925, er
voru þessi:
í byrjun ársins undirbjó hann „Frumvarp eða fyrir-
mynd til laga fyrir nautgriparæktarfjelög" og „Reglur
um sýningar á nautgripum", er Búnaðarþing tók til
meðferðar og samþykti (sjá „Búnaðarrit“ 39. ár, bls. 318
og 322). Þá fór hann í námsskeiðs-leiðangur um Norður-
land, eins og frá er skýrt í aðalskýislu fjelagsins, en
fyrri part sumars var hann á nautgripasýningum þeim,
er haldnar voru, og líka er skýrt frá í aðalskýrslunni.
Snemma í september lagði hann í ferð austur í Skafta-