Hlín - 01.01.1918, Side 5
Hlin
5
Fundargerð.
Sambandsfjelag norðlenskra kvenna hjelt ársfund sinn
á Akureyri 23,. 24. og 25. júní síðastl. Fundinn sátu 16
fulltrúar, en fjöldi kvenna úr öllum Norðlendingafjórð-
ungi og nokkrar konur úr Austfirðingafjórðungi sóttu
fundinn.
Halldóra Bjarnadóttir, formaður Sambandsins, setti
fundinn og stýrði honum.
í Sambandið hafa þessi fjelög bætst á árinu. Kvenfje-
lag Svalbarðseyrar, kvenfjelag Þistilfjarðar og kvenfje-
lag Siglufjarðar. — I sanrbandinu eru nú á fimta hundr-
að konur.
Fundinum bárust samúðarskeyti frá Bandalagi kvenna
i Reykjavík og frá Hinu skagfirska kvenfjelagi á Sauðár-
króki.
Kveðjusending barst og fundinum frá einni stjórnar-
konunni, Hólmfríði Pjetursdóttur frá Gautlöndum, er
því miður ekki gat sótt fundinn.
Eftir tillögu formanns var kosið í nefndir í aðalmál-
unum þegar í fundarbyrjun til þess að undirbúa málin,
fá framsögumann og semja tillögur.
Þessar konur hlutu kosningu í nefndina:
I. Hjúkrunarmál: Anna Magnúsdóttir, Ak., Sigurlína
Sigtryggsdóttir, Efs., Vjedís Jónsdóttir, S.-Þs.
II. Iðnaðarmál: Margi jet Símonardóttir, Sks., Ingibjörg
Guðmundsdóttir, Hvs., Halldóra Bjarnadóttir, Ak.
III. Garðyrkjumál: Anna Jakobsdóttir, S.-Þs., Jónína
Níelsdóttir, Efs., Vilhelmína Sigurðardóttir, Ak., Guð-
rún Björnsdóttir, Ak.
Lög S. N. K. voru því næst lesin upp og rædd. Sam-
þykt að breytá þeint ekki að þessu sinni.
Aðalbjörg Sigurðardóttir, Akureyri, og Margrjet Sím-
onardótir, Brimnesi, vöktu máls á því, að þörf væri á
að gera Sambandið og hugsjónir þess betur kunnugt