Hlín - 01.01.1918, Qupperneq 8
8
Hlín
og telur æskilegt, að þar sjeu sýndir allir algengir heima-
unnir munir, er notaðir eru í daglegu lífi.“
3. „Fundurinn leggur eindregið til, að samvinna kom-
ist á um vandaða framleiðslu á iðnaðarmunum, er flytj-
ast út úr landinu, þar eð það bæði er okkur til efnalegs
tjóns, að útflutta varan sje óvönduð og landsmönnum
til óvirðingar.
„Fundurinn leggur til að matsmenn sjeu skipaðir
á prjónles á þeim stöðum, sem þess er þörf, og að til
þess starfa sjeu konur kjörnar. Æskilegt að matsmenn
liafi jafnan góð sýnishorn fyrirliggjandi framleiðendum
til stuðnings.“
III. Garðyrkja.
Framsögu hafði Guðrún Björnsdóttir, garðyrkjukona.
Frá nefndinni kom fram svoldjóðandi tillaga:
„Nefndin leggur til, að kveníjelög norðanlands taki
garðyrkjumálið á dagskrá sína, velji vel hæfar konur til
garðyrkjunáms í Gróðrarstöðinni á Akureyri, sjái þeim
íyrir nægilegum námsstyrk og tryggi þeim atvinnu að
náminu loknu.“
Um málið urðu talsverðar umræður og skiftar skoð-
anir ;þótti mörgum konum málið lítt undirbúið. Svolát-
andi breytingartillaga var samþykt í málinu:
„Fundurinn leggur það til að kvenfjelög norðanlands
hafi garðyrkjumálið á dagskrá sinni og telur heppilegt
að vísa því heim í sveitirnar til frekari umræðu og fram-
kvæmdá.“
Ennfremur var samþykt svohljóðandi tillaga:
„Nefndin lítur svo á, að brýn þörf sje á að garðyrkju-
mál Akureyrarbæjar sjeu tekin til umræðu á fundinum.“
Talaði Guðrún Björnsdóttir fyrir tillögunni. Gat hún
þess, að mikil eftirspurn væri í Gróðrarstöðirini á vorin
eftir hjálp við garðyrkju frá skrúðgarðaeigendum á Ak-
ureyri, þessa hjálp gæti Gróðrarstöðin ekki veitt vegna
annríkis, væri því full þörf á að fá garðyrkjukonu fyrir
bæinn ,með því líka mikið starf væri fyrir lærða garð-