Hlín - 01.01.1918, Side 11

Hlín - 01.01.1918, Side 11
Hlin 11 því sambandi skýrði formaður frá því, að ákvæði þar um hefði verið sett í lög Bandalagsins. Væri það gert til þess að auka kynni og samúð innan Bandalagsins. Vjer bærum hlýrri hug til þeirra, er vjer þekkjum, en liinna, er vjer værum ókunnugri, og þótt tölurnar í skýrslun- um gleymist, geymist þó heildarhugmyndin, störf og framkvæmdir fjelaganna. IV. Satnkornuhús fyrir kvenfjelög i Reykjavik. Frum- mælandi frú Steinunn H. Bjarnason. Kvað nauðsynlegt að fjelögin eignuðust viðunanlegt samkomuhús. Bæri l’yrst og fremst að athuga, að fyrirkomulagið fullnægði þeim kröfum, er nú á tímum væri gerðar til slíkra húsa, þó svo, að lyrirtækið yrði eigi of kostnaðarsamt. Gerði áætlun um húsnæði, er með hagsýni gæti nægt sem fundarstaður, lestrarsalur og bókasafn, ásamt veitinga- stofu fyrir konur, og kosta mundi, að stríðinu loknu, að minsta kosti, 50—60 þús. kr. Stofnfje ætti að mega fá íneð smáhlutabrjefum, er konur eða ljelögin keyptu, en reksturskostnaðinn ætti fyrirtækið sjálft að geta borið. Var mál þetta lítið rætt, en svohljóðandi tillaga samþykt í einu hljóði: „Fundurinn kjósi 5 kvenna nefnd til þess að undir- búa samkomuhúsmálið fyrir næsta aðalfund." V. Hjúkrunarheimili i Reykjavík. — Ungfrú Sigurbjörg I’orláksdóttir hóf umræður. Máli þessu hefði Ijelag það er hún væri fulltrúi fyrir („Hvíta bandið") lengi haft luig á að hreyfa og áliti sig í því mega vænta stuðnings frá Bandalaginu. Væri öllum kunnugt hvernig ástatt væri fyrir sjúklingum, er af spítala kæmu, en sem væru eigi nógu frískir til þess að komast heim til sín. Væri oft ó- mögulegt að koma þeim fyrir og yrðu þeir að vera kyrr- ir á sjúkrahúsum og taka þar upp rúm fyrir veiku fólki, er lægi á að komast á spítalann. — Benti á hús hjer í bænum, er nota mætti sem hjúkrunarheimili og gat þess að hjúkrunarfjelagið „Líkn“ helði lol'að að hjúkrunar- kona sú, sem er í þess þjónustu, skyldi búa á hælinu

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.