Hlín - 01.01.1918, Page 13

Hlín - 01.01.1918, Page 13
Hlin 13 notið sömu launa, barnakennarar; nú væri farið að bóla á því við stærsta barnaskóla landsins að kennurum væri skift í flokka með mismunandi launum og konur þá í lægri flokkunum. Allstaðar sætu karlmenn fyrir vel laun- uðum stöðum og ef konum væri veittar fastar stöður, væri það jafnan með lægri launum. Til þess að kippa þessu í lag þyrftu konur að eiga aðgang að jafnri „fag“- mentun og karlar og hagnýta sjer hana. Vil láta kjósa nelnd, er íhugi þetta mál og komi með tillögur í því. Umræður urðu litlar og var með öllum greiddum at- kvæðum samþykt að kjósa þriggja kvenna nefnd í málið. VIII. Menntamdl kvenna. — Ungfrú Hólmfríður Pjet- ursdóttir frá Gautlöndum.sem er ein af stjórnendum S.N. K., flutti samkvæmt tilmælum erindi um mentamál kvenna. Eftir því horfi, er mentamál kvenna eru komin í lijer á landi, taldi ræðumaður umbætur á hússtjórnar- mentun nauðsynlegasta, þannig, að stofnaðir yrðu hús- stjórnarskólar, er fullnægðu þeim kröfum, er gera verður til húsmæðra í sveit, eigi síður en í kaupstað. Skýrði frá hvaða fyrirkomulag mundi heppilegast. Urðu talsverðar umræður um mál þetta, sjerstaklega um afstöðu heimilanna og skólanna hvort gagnvart öðru. Engin tillaga samþykt IX. Barnahœli í Reykjavík. Frummælandi Steinunn Bjartmarsdóttir. Mikið rætt nm málið og að umræðum loknum samþykt svoltljóðandi tillaga frá flutningsmanni og frú St. H. Bjarnason: „Það er tillaga okkar að kosin sje þriggja kvenna nefnd til þess að vinna að framgangi harnahælismálsins." X. Ávarpstitill kvenna. Sett á dagskrá af Lestrarf jelagi kvenna í Reykjavík. Frú Theódóra Thoroddsen hóf um- ræðurnar. Taldi þess þörf að fenginn yrði einn sameig- inlegur titill fyrir allar fulltíða konur, eldri sem yngri, giftar sem ógiftar. Væri slíkur titill til sem sjálfkjörinn væri, en það er „frú“, sem er fallegt, handhægt orð og góð og gild íslenska. Las upp tillögu frá L. F. K.:

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.