Hlín - 01.01.1918, Síða 14
14
Hlin
I. ,,L. F. K. R. telur æskilegt að ávarpstitill íslenskra
kvenna frá fermingaraldri, giftra og ógiftra, sje einn og
liinn sami og álítur þá titilinn „frú“ heppilegastan.“
II. „Fjelagið leggur til að mál þetta sje lagt fyrir árs-
lund Bandalags kvenna til frekari framkvæmda."
Urðu fjörugar umræður um þetta mál með og móti,
og var að síðustu fyrri liður tillögunnat samþyktur og
viðaukatillaga um kosningu þriggja kvenna í nefnd til
þess að vekja eftirtekt. á málinu og vinna því fylgi, sam-
þykt af öllum þorra fundarmanna, 10 atkv. á móti. — t
þessu máli var öllum heimilað að gxeiða atkvæði.
Þegar hjer var komið var orðið mjög áliðið. Tvö mál
eftir, annað á dagskrá, um almenningseldliús, liitt utan
dagskrár, um mjólkursölu í Reykjavík. Akveðið að fresta
þeim að þessu sinni, en stjórn Bandalagsins falið að halda
bráðlega aukafund um þau.
Einnig varð að fresta kosningu nefnda og stjórnar
Bandalagsins næsta ár þar til síðar á fulhrúafundi.
Var þá fundi slitið um miðnætti.
Sýslusambönd.
Þess var getið í ,,Hlín“ 1917, að brýn þörf væri á, að
samvinna kæmist á með kvenfjelögunum í hreppunum
innan hverrar sýslu, svo hjeraðskonum gæfist færi á að
kynnast hver annari og starfsemi hinna einstöku fjelaga
betur en ella yrði, og þar að auki ræða ýms mál, er snertu
hjeraðið í heild.
Teljum vjer ekki ólíklegt að þessir sýslufundir kvenna
gætu látið margt gott af sjer leiða fyrir hjeraðið, engu