Hlín - 01.01.1918, Qupperneq 16
16 Hlin
er ekki mega koma í bága við lög Sambandsfjelags norð-
lenskra kvenna.
4. gr.
Hver deild, sem í tjelaginu er, sendir fulltrúa á árs-
fundi þess, einn fyrir hverja 20 fjelaga; þó geta deildir,
er hafa færri en 20 fjelaga, sent einn fulltrúa.
5. gr.
Hver deild, sem gengur í sýslusambandið, greiðir í
fjelagssjóð 20 aura fyrir hvern fjelaga sinn.
6. gr.
Aðalltmdi heldur fjelagið í júnímánuði ár hvert. Skulu
þar kosnir 2 fulltrúar á sambandsfund S. N. K. og þeim
gefið umboð til að kjósa konu í stjórn S. N. K. Þar skulu
rædd og samþykt lög eyrfirska sambandsins, lagðir frarn
reikningar þess til staðfestingar og fjelagatal frá deild-
unum. Þar skulu rædd sameiginleg mál deildanna, t. d.
dagskrá sambandsfundar S. N. K. og lög S. N. K. Þar skal
kosin stjórn og endurskoðendur reikninga. Á aðalfundi
ræður afl atkvæða. Forstöðukonur deildanna eru skyldar
að mæta á aðalfundi og hafa þær atkvæðisrjett, ásamt
fulltrúunum. Einn aukafund skal halda á ári, ef meiri
hluti deildanna óskar þess, eða ef stjórnin telur þess
þörf.
Öllum konum á sýslufjelagssvæðinu er heimilt að sitja
fundinn, og hafa þar málfrelsi og tillögurjett.
7. gr.
Stjórnin er kosin til eins árs í senn. í lrenni skulu sitja
3 konur: Forstöðukona, ritari og fjeltirðir, og 3 í vara-
stjórn. Forstöðukonur deildanna má ekki kjósa í stjórn
Sambandsins. Stjórnin boðar til funda, annast fram-
kvæmdir á verkefnum sambandsfjelagsins og er málsvari
þess út á við. Hún hefur á hendi fjárráð íjelagsins í sam-
bandi við aðalfund. Forstöðukona er sjálfkjörin fundar-