Hlín - 01.01.1918, Page 18

Hlín - 01.01.1918, Page 18
18 Hlín Frá Kvenfjelagi S.-Þingeyinga. Veturinn 1904—05 ferðaðist um S.-Þingeyjarsýslu ung- frú Jóninna Sigurðardóttir frá Draflastöðum og kendi konum matreiðslu, flutti hún jafnframt fyrirlestra í ýms- um húsmóðurfræðum. Hjelt hún námsskeið í flestum sveitum hjeraðsins. Mun hvorttveggja verið hafa, að kona þessi var áhuga- söm og starfinu vaxin og hitt, að ýmsar öldur voru þá að brotna á hugum rnanna, er til framfara og tilbreytni horfðu, að konum þótti þessi nýbreytni góð. Snart hún svo lmgi þeirra, að er vora tók vildu þær ekki láta starf og strauma vetrarins hverfa ummerkjalaust. Margt virt- ist benda til að nú væri sjálfsagt fyrir þær að taka hönd- um saman, til að vinna að ýmsum umbótum* er öldin nýja bæri í skauti sjer. Sjerstaklega voru það mentamál kvenna, er þeim þótti auðsætt að yæru lítt viðunandi. Því var það, að nokkrar konur gengust fyrir að kon- ur víðsvegar um hjeraðið voru kvaddar til fundar að Ljósavatni 7. júní 1905. Var þar áhugi mikill og fjör. Ráðið að stofna fjelag fyrir hjeraðið alt og kosin nefnd til að setja því lög og reglur; var þegar ákveðið að í hverjum hreppi hjeraðsins skyldi mynda sjerstaka deild, en allar ættu þær sameiginlega stjórn, er kosin væri af fulltrúum deildanna á aðalfundum fjelagsins. — Frijm- uður þessarar hreyfingar, ungfrú Jóninna Sigurðardóttir, var sjálfkjörinn formaður fjelagsins. Efst á dagskrá fjelagsins settu konurnar stofnun hús- mæðraskóla fyrir Norðurland fhelst í Þingeyjarsýslu) og var jafnframt ákveðið að öll fjársöfnun fjelagsins skyldi ganga til að styðja það mál. Annars vildi fjelagið styðja hvert það mál, er verða mætti landi og þjóð til sannra þrifa. En um skólamálið snerist mestur áhuginn, sendu þær áskoranir til Alþingis og báru það fram á þingmála- fundum. Má fullyrða að það hafi að miklu leyti verið fyrir til-

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.