Hlín - 01.01.1918, Síða 19

Hlín - 01.01.1918, Síða 19
Hlin 19 hlutun Kvenl jelags S.-Þingeyinga, að málið kom fram á þingi 1907 og þingmaður Suður-Þingeyjarsýslu gjörðist einn a£ flutningsmönnum þess. — Ekki gleymdi fjelag- ið heldur að minna á málið á næstu þingunum 1909 og 1911, þótt enginn sjáist árangurinn utan nokkrar prent- aðar samþyktir í skjalasafni þingsins. Að sjálfsögðu tók fjelagið þátt í umbótakröfum um pólitísk rjettindi kvenna. Heimilisiðnaðarmálið er annað það mál, er fjelagið hefur látið sjer sjerstaklega ant um. Gekst það fyrir iðn- sýningum í flestum eðá öllum hreppum hjeraðsins. Á 10 ára afmæli fjelagsins 1915 hjelt það sýningu fyrir alt hjeraðið á Breiðumýri, er þótti bera vott um vaknandi áhuga og starfsemi síðari ára. Veturinn 1916 hjelt það námsskeið í vefnaði. Eníifremur hefur það komið á náms- skeiðum í matreiðslu og garðrækt og sumar deildir fjelags- ins hafa haldið uppi saumaskólum. Nú á síðari árum hef- ur það unnið að hjúkrunarmálinu. Ýmsir örðugleikar liafa orðið á vegi þessa tjelags og þó einkum sá, að fjelagssvæðið er stórt en strjálbygt og því erfitt með fundahöld. En til að bæta úr því, hefur fjelagið haldið út l)laði. Er hverri deild skylt að gefa út eitt eintak á ári og hefur það furðu sjaldan farist fyrir. Hafa blöðin flutt ritgjörðir um áhugamál kvenna, sjer- staklega þau, er fjelagið hefur haft með höndum, og ýmsar þarfar bendingar. Einnig smásögur, kvæði og æf- intýri. Er það trú margra, að blaðið, þótt ófullkomið hali verið, hafi þó átt drýgstan þátt í viðgangi fjelagsins. H. Hið skagfirska kvenfjelag, Sauðárkróki. Fjelagið var stofnað á Sauðárkróki 21. ág. 1895 af 25 konum. Fyrstu stjórnendur voru: Sýslumannsfrú Margrjet Guð- 9*

x

Hlín

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.