Hlín - 01.01.1918, Síða 20

Hlín - 01.01.1918, Síða 20
20 Hlín mundsdóttir, frú Ólöf Hallgrímsdóttir, frú Líney Sigur- jónsdóttir. Varaforstöðukona var frú Sigurlaug Gunnars- dóttir í Asi í Hegranesi. Aðalmarkmið fjelagsins er að gleðja fátæka og hjálpa sjúkum. Þessa hugsjón hefur fjelagið rækt af alhuga þau 23 ár, sem það hefur starfað. Það hefur klætt fátæk börn og glatt þau á ýnrsan veg eftir mætti, fætt fátækar sængur- konur, styrkt fátækar ekkjur og aðra þá, senr hafa þurft hjálpar við og senr fjelagið liefur náð til. Ennfremur hefur fjelagið lagt sinn skerf til ýmsra franr- sóknarmála hjeraðsins. Þegar kirkjan var bygð á Sauðárkróki, tók kvenfjelagið þátt í málningarkostnaðinum (2—300 krónur). Til sjúkralnissins voru gefnar 200 kr. Til barnaskólans 200 kr. Til styrktar gróðrarstöðinni í kauptúninu 50 kr. Fjelagið liafði unr árabil kenslu í handavinnu fyrir börn mánaðartím aða vorinu. Drengir skáru í trje, stúlk- ur prjónuðu, saumuðu og gerðu við föt. Þegar farið var að kenna handavinnu í barnaskólanunr, fjell þessi kensla niður. Þá gekst kvenfjelagið l'yrir því, að góður upphleyptur vegur var lagður suður úr bænum yfir svonefndar flæð- ar, var þar aldrei hægt að konrast þurt áður. Konurnar lögðu til dagsverk fleiri eða færri. Vegurinn er nresta bæj- arprýði, enda nefndur „Frúarstígur". Þá gaf fjelagið 125 kr. til málningar kirkjunnar iiðru sinni. Enn er að nefna stofnanir fjelagsins. Sjóðir eru 3, auk Ijelagssjóðs. Ár 1900 var ekknasjóð- ur stofnaður fyrir sýsluna, stofnfje 100 kr. — Ár 1913 var annar ekknasjóður stofnaður með 500 kr.. aðeins fyrir Sauðárkrók, er hann nú 950 kr., en þegar hann hefur náð 1000 kr. má fara að veita úr honum. Þá var á s.l. ári stofnaður minningarsjóður frú Önnu Claessen, til að stýrkja fátæka og yejka á Sauðárkróki. Kvenfjelag-

x

Hlín

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.