Hlín - 01.01.1918, Page 23

Hlín - 01.01.1918, Page 23
Hlin 23 Við hljótum að dást að hve miklu fjelagið hefur áork- að þau rúm 20 ár, er það hefur starfað. Vitanlega eru konurnar ekki einar að verki, þær hafa Jrjóðina alla að bakhjarli, svo að segja. Starf fjelagsins greinist aðallega í tvent: að koma í veg fyrir veikina og að lækna Jrá sem sjúkir eru orðnir, eða gera Jreim lífið bærilegt. Ársskýrslan, sem um var getið, telur 45 fyrirlestra, er fjelagskonur fluttu víðsvegar um landið. Voru þeir flest- ir um ýms heilbrigðismál, hreinlæti og varnir gegn veik- inni. Alt kapp er lagt á að mönnum skiljist liver liætta sje á ferðum og hagi sjer eftir Jjví. — Hreinlæti í verk- smiðjum og vinnustofum hefur stórum batnað síðan fleiri konum var falið eftirlitið, Jreir staðir voru oft gróðrarreit- ir berklanna, nú er Jrar lögboðið strangt eftirlit. Sama má segja um hið lögboðna eftirlit með íbúðurn manna. Konurn er nú falið Jrað starf víða fyrir milligöngu fjelags- ins, og fjöldi af óheilnæmum íbúðum eru bættar, og bann- að að nota þær sem lakastar eru. Sjerstök áhersla er lögð á að bjarga börnunum frá áhrif- um berklanna. Hjúkrunarkonur fjelagsins og skólalækn- arnir benda fjelaginu á hvaða börn þurfi sjerstakrar aðhlynningar við, Jrau fá mjólk og lýsi, eða þeim er kornið upp í sveit, svo Jjau geti styrkst í góðu lofti og liaft gott viðurværi. Þeim sem lökust eru af blóðleysi eða kyrtlaveiki er komið á baðstaði, er stofnaðir eru í því skyni. Mörg af börnum Jressum Jiola ekki skólavist, handa Jreim hefur fjelagið stofnað útiskóla. Barnaheimilum liefur fjelagið komið upp í hinum stærri bæjum fyrir ungbörn berklaveikra kvenna. Þá lætur fjelagið nokkrar af hinum mörgu hjúkrunar- konum, er Jrað hefur á að skipa, leiðbeina heimilunum í

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.