Hlín - 01.01.1918, Side 24

Hlín - 01.01.1918, Side 24
24 Hlin meðferð á ungbörnum og í ýmsu er að lueinlæti og lteil- næmi lýtur.* Hjálp sú, er fjelagið veitir þeim sem veikir eru, en geta verið á heimilum sínum, er að ýmsu leyti lík þeirri, er hjúkrunarfjelögin hjer veita sjúklingum sínum. Mjólk- ur- og matargjafir, fatnaðar- og rúmfatnaðargjafir eða lán, gefin eða lánuð rúm, borguð húsaleiga, lánuð hjúkr- unarkona o. s. frv. Hrákaglös lánar fjelagið og gefur í þús- undatali.** En langþýðingarmesti liðurinn í starfsemi fjelagsins lyrir tæringarveikt fólk eru hæli fjelagsins (Pleiehjem), er það hefur bygt í tugatab út um gjörvalt landið. Get jeg ekki stilt mig urn að fara um þau nokkrum orðurn, því það er ekki ólíklegt að það hæfisfyrirkomulag ætti vel við hjá okkur, þar sem strjálbygð og erfiðar samgöngur banna mönnum miklu fremur en í Noregi að sækja hæli langa vegu. Pess er getið í skýrslu íjelagsins 1912, að það ár liafi 4 smáhæli tekið til starfa. Er einu þeirra fýst nokkuð: Það rúmar 15— 17 sjúklinga og kostaði 15 þús. kr. 1917 opnar fjelagsdeild Friðrikstað-bæjar hæli í grend við kaupstaðinn, er hún ætlar að starfrækja sjálf. Það tekur 25 sjúklinga og kostar nteð öllum áhöldum og út- lninaði 116 þús. kr. Nákvænt lýsing fylgir og er auð- * í hjúkrunarkvennaskóla Ijelagsins í Kristjaníu hafa 240 konur lært, samkvæmt ársskýrslu fjelagsins. Eru það konur af öllum stjettum, ekki síst vel mentaðar stúlkur, er velja sjer þetta göf- uga starf, helga því líf sitt og krafta, lengri eða skemri tíma ævinnar. Vonandi fara fleiri íslenskar konur að finna köllun lijá sjer tii þessa starfa, svo að landspítalann skorti ekki góðar íslenskar hjúkrunarkonur, er hann tekur til starfa. Námið í sjúkrahúsum erlendis er 3—4 ár, svo ekki veitir af tímanum. ** Fjelagið hafði eltirtektarverða sýningu á ýmsum áhöldum og tækjum fyrir herklaveikt fólk á landssýningunni í Kristjaníu 1914,

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.