Hlín - 01.01.1918, Qupperneq 25
Hlín 2í>
sjeð á öllu, að byggingin er mjög vönduð og öllu hagan-
lega fyrirkomið.
Fjelagið hefur einnig komið upp stórum hælum, en
þessi smáhæli þykja auðsjáanlega hentugust.
Fjelag þetta hefur verið stórvirkt í framkvæmdunum,
enda hefur það hlotið aðdáun allra fyrir sitt góða og
mikla starf.
Halldóra Bjarnadóttir.
Heimilisiðnaður.
Iðnfjelag Viðvíkurhrepps í Skagafirði.
Flestir munu vera samdóma um það, að hægra sje að
stofna fjelög en halda jreim við og efla jDau. Þau eiga
oft stutta lífssögu og skilja lítið eftir til minningar urn
sig, og má af þessu nokkuð marka þroska þjóðaririnar,
hve langt er komið í þessu tilliti. Því reynslan sýriir, að
þar sem sönn mentun og andlegur þroski ríkir, þar er og
fjelagslífið í blóma.
Jeg hef verið beðin að segja í „Hlín“ ofurlítið um eitt
nýstofnað fjelag, senr þó ekki lremur en önnur fjelög
veit sinn aldur fyrir. Fjelagið er stofnað síðastliðinn vet-
ur og birtust strax í byrjun erfiðleikar þeir ,er fjelags-
skapur í sveitinni nær ætíð á við að stríðá. Stofnfundur
var ákveðinn fyrsta vetrardag og hvað eftir annað Itoðað
til Iians, en sökum óveðurs fórst hann jafnan fyrir, þar
til eftir miðjan vetur, að konur lögðri út í stríð við nátt-
úruöflin, her-tygjaðar viljakrafti sigurgyðjunnar, og komu
saman á fund einn hinn mesta hvassveðursdag vetrarins,
sunnudaginn í mið-góu. A þeim fundi var kosin stjórn