Hlín - 01.01.1918, Síða 34
34
H lin
um, það mundi ekki vera svo lítið, er öllu væri á botn-
inn hvolft og þetta reyndist líka svo að vera.
Það, sem sjerstaklega varð til þess að korna málinu í
framkvæmd var það, að sýningin gat átt von á munum
frá 4 smásýningum, er haldnar voru sín í hverri sýslu
Norðurlands í vor# og svo liitt, að fjelagið hafði sjálft
40—50 muni frá vefnaðarnámsskeiði því, er það ljet halda
á Akureyri í apríl í vor.
Fjöklamargar áskoranir um þátttöku voru sendar víðs-
vegar um Norðurland, körlum sem konum, var það með-
fram gert til þess að vekja athygli á starfi Heimilisiðn-
aðarfjelagsins og liugsjónum Jjess.
Nefndinni bárust aftur með mununum rnörg brjef, er
hlutu að gleðja lijörtu allra heimilisiðnaðarvina, þau lýstu
svo góðum skilningi á nytsemi málsins og svo miklum
áhuga á að verða því að liði. Þó sýningin hefði ekki gert
annað gagn en leiða þetta í ljós, var ekki til ónýtis erf-
iðað.
Málaleitun nefndarinnar um sendingu muna var vel
tekið og furðu margbreytt það sem sent var.
Undirbúning allan og tilhögun annaðist sýningarnefnd-
in (stjórnin ásamt 6 þar til kjörnum mönnum og kon-
um). Sýningin var haldin í barnaskólanum (4 stofum).
Það mátti segja að sýningin hafði heppnina með sjer!
•Tíðin var hin besta, enda var gleðiblær yfir Akureyrar-
bæ þessa viku. Menn hristu af sjer vetrardeyfðina og
drungann og gleymdu um stundarsakir dýrtðinni, kalinu
í túnunum og öllum öðrum erfiðleikum.
Vorverkin unnust snemma, svo fólkið mátti vera að
því að lyfta sjer upp, enda notaði það tækifærið.
16—1800 manns skoðuðu sýninguna og alnient ljetu
* Á Breiðumýri í S.-Þing.
Á Kolkuósi í Skagafj.s.
í Saurbæjarhreppi í Eyjafj.s.
í Engihlíðarhreppi í Húnavatnss,