Hlín - 01.01.1918, Page 35

Hlín - 01.01.1918, Page 35
Hlin 35 menn í ljós ánægju sína yfir þessum sýnilega votti mann- rænu og dugnaðar. Sýningarmunirnir voru á 9. hundrað. Skrá, er samin var yfir munina, var til sölu á sýningunni, og að henni lokinni var skráin send til flestra þeirra, er muni áttu á sýningunni og til fjölmargTa iðnaðarvina víðsvegar um land. Það er mikið fyrir sýningum haft, en hvervetna í heimi þykja þær eitt hið áhrifamesta hvatningarmeðal til fram- kvæmda, því sjón er jafnan sögu ríkari. Þetta er þegar viðurkent hjer á landi nreð kvikfjársýn- ingunum, er orðnar eru almennar og njóta styrks af opinberu fje; en lijer þurfa einnig að verða árlegar sýn- ingar á iðnaði, á verkfærum, á algengum matvælum, mat- jurtum, blómum o. fl. Heimilisiðnaðarfjelag Norðurlands hefur hug á að gangast fyrir árlegum sýningum á iðnaði. En þessi sýning hefur leitt það í ljós, að árlegar sýningar eru því aðeins framkvæmanlegar, að aðeins ein og ein grein iðnaðar sje sýnd hvert árið, annars verður kostnaður og fyrir- liöfn fjelaginu um rnegn. Þannig mætti liafa tóskap ýmis- konar og þar tilheyrandi vjelar og verkfæri til sýnis eitt árið, ýmsan iðnað frá iðnaðarmönnum annað árið, liann- yrðir þriðja árið o. s. frv. Almennar sýningar æftu svo að vera 5. eða 10. hvert ár. En sýningarnar þarf að styrkja ríflega, ella standast þær ekki kostnaðinn, en þess mun engan iðra, er skilur og þekkir gagnsemi sýninganna. Kona. 3*

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.