Hlín - 01.01.1918, Side 44
44
Hlin
ist um og liti eftir, leiðbeindi og aðstoðaði við hirðingu
garðanna og uppskeruna á haustin.
Sumarið í sumar hefur verið óhagstætt jurtagróðri og
margar hafa plönturnar fölnað, sem gróðursettar voru í
vor. En því fleiri plöntur verðum við að gróðursetja
næsta vor, og því meiri umhyggju verðum við að bera
fyrir þeim, því íslenski þrótturinn liarðnar við liverja
raun. Því kaldara sem úti er, því heitar verður framtíð-
arvona- og álnigaeldurinn að brenna í huga og hjörtum.
Kristbjörg Jónalansdóttir.
»Hlín.«
Ársrit Sambandsfjelags norðlenskra kvenna.
Þegar stjórn S. N. K. rjeðist í að verða við áskorun
Sambandsfundanna um útgáfu rits, er orðið gæti boð-
beri milli kvenna, sjerstaklega á Norðurlandi, var henni
það fullljóst, að sá, sem bæri ábyrgðina, ætti talsvert. á
hættu, hvernig fara mundi. Margir hafa líka orðið til að
spyrjast fyrir um, hvernig þessum 1. árgangi hafi reitt af.
Ritinu hefur verið vel tekið; karlar jafnt sem konur
hafa lokið á það lofsorði og talið það eiga skilið að lifa
og starfa.
Stærst var ábyrgðin að þessu Ieyti, livort ritið yrði þann-
ig úr garði gert, áð það þætti á vetur setjandi.
Tregar hafa konur verið til að senda ritinu greinar;
er þar þó heldur framför frá í fyrra; tel jeg víst að það
glæðist smám saman, ef ritsins er von árlega. Gæti þá svo
farið, að eitt rit rúmaði ekki það, sem að bærist, enda
væri það ekki áhyggjuefni, þó heftum þyrfti að fjölga.
J