Hlín - 01.01.1918, Page 48

Hlín - 01.01.1918, Page 48
 Hlin upp það sem þau ná. Við vonum að þessum ljósum fjölgi og að birta þeirra nái æ lengra og lengra, þar til þau að síðustu sameinast í einni kærleikssól, sem megnar að lýsa upp alla jörðina. Mig langar til að segja ykkur frá einu þessu litla ljósi, sem nú á seinni árum liefur lýst upp fangelsin í einu ná- grannalandi okkar. Það gefur vonir um meiri birtu á þeim sviðum í framtíðinni. Sem betur fer er glæpamanna- og fangalífið sá þáttur mannlífsins, sem við íslendingar þekkjum lítið ennþá, jeg ætla að vona, að við kynnumst því aldrei, nema af afspurn. En í öðrum löndum, sjerstaklega í stórborgun- um, er fjöldi glæpamanna. Börn þessa fólks alast upp í synd og löstum, þau sjá ekki fyrir sjer annað en það sem ljótt er og læra ekki að gera greinarmun á rjettu og röngu. Auk þess eru margir svo settir, að örbirgðin rekur *þá út á glæpanrannabrautina. Hvað hafa nú þjóð- fjelögin gert til þess að bjarga þessu fólki? Ekkert ann- að en hrúga því saman í stór fangalnis, þar sem það oft hefur orðið að líða margskonar andlegar og líkam- legar þjáningar, og úr mörgum fanganum hefur þar ver- ið drepinn síðasti snefillinn af sómatilfinningu og löng- un til þess að bæta ráð sitt. Þegar svo þessir vesaling- ar koma út úr fangelsunum, þá eru þeim eiginlega allar bjargir bannaðar. Enginn vill hafa þá í vinnu af því þeir liafa verið í fangelsi, en allra augu, og þá fyrst og fremst lögreglunnar, fylgja þeim eftir með tortryggni. Því er vanalega ekki um annað að gera, en að halda áfram á hinni sörnu braut, og fallið verður altaf dýpra og dýpra. Hjer er þá ein af þeim rotnu mannfjelagsmeinsemdum, sem ásamt öðrum fleirum hefur orðið til þess að skapa hið núverandi ástand heimsins, og sem áreiðanlega verð- ur að lækna, ef vel á að fara. Það hafa líka ágætir hug- sjónamenn sjeð fyrir löngu, og á síðustu árum hefur mikið verið unnið að því, bæði af fjelögum og einstök- um mönnum, að reyna til þess að bæta kjör fanganna,

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.