Hlín - 01.01.1918, Síða 50

Hlín - 01.01.1918, Síða 50
50 Hlin málari, koma heim til sín til þess að mála upp gömul húsgögn. Á meðan fanginn var við þetta starf, gekk Matthildur um herbergið, þar sem hann var að vinna. En henni brá í brún, þegar henni varð litið á hann og þekti þar þegar í stað manninn, sem hana hafði nú dreymt hverja nóttina eftir aðra. Maðurinn leit snöggvast upp, þegar hún kom inn, en hjelt svo jafnskjótt áfram við vinnu sína, en svo voru draumarnir ríkir í huga Matt- hildar, að hún gat ekki skilið í því, að hann skyldi ekki eins og í draumunum biðja liana að hjálpa sjer. Maður- inn virtist vera alveg rólegur, en þó var Matthildur sann- færð um það, að honum liði eitthvað illa, og henni var ómögulegt að yfirgefa hann svona. Hún gekk þá til hans og fór að tala við hann, hún sagði við hann alt Jrað sem henni datt í hug, að gæti orðið honum til liugg- unar, hún, sem var að upplagi feimin, varð alt í einu mælsk, hún opnaði Iijarta sitt meira fyrir þessum manni, en hún hafði gert fyrir nokkrum manni öðrum. Alt í einu 'Jragnaði hún, henni datt í hug að það væri ekki viðeigandi, að hún, sem var svo ung, væri að reyna að hughreysta aldraðan mann, hann mundi að öllum líkind- um bara hlæja að benni. Maðurinn Jragði og stóð álútur við vinnu sína, hún sá ekki framan í hann. Hann lauk við það, sem hann var að gera, hún var að hugsa um að laumast út, en þótti Jw skömm að því og stóð kyr. Þegar hann hafði lokið við vinnu sína, þurkaði hann af penslunum, og svo leit hann upp og horfði framan í hana. Þá sá hún að hann hafði grátið og að hann var í mikilli geðshræringu. „Það er illa farið,'‘ sagði liann og lagði áherslu á hvert orð, „að þjer getið ekki komið of- an í fangelsið og talað við liina fangana líka,“ svo fór hann. Þessi orð fangans rjeðu úrslitunum eða stefnunni í lífi Matthildar, henni fanst sem guð sjálfur hefði birt sjer hvað hann vildi að hún gerði og væri Jrað guðs vilji, að hún vitjaði Jteirra, sem Jrjáðust í hlekkjum og fangels- lim, því skyldi hún Jrá ekki gera það.

x

Hlín

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.