Hlín - 01.01.1918, Qupperneq 78
78
Hlin
Jeg álít, að allar konur ættu að eiga oiurlítið íshús, sjerstaklega
þær sem færa frá, Mjer hefur fundist jeg fá meira smjör úr kælda
rjómanum, og það þarf ekki að geyma hann nema dægur til þess
að hann sje orðinn nógu kaldur, hvað heitt sem er.
Það er líka þægilegt í hiturn á sumrin að geta brugðið inn í
ískofann hverskonar nýmeti, sem rnaður vill geyma. Fyrir utan
þægindin og hollustuna sparast saltið — nerna Jrví aðeins að maður
vilji frysta eitthvað, þá er ekkert því til fyrirstöðu.
Það er kostnaðarlítið að koma sjer upp ískofa. Við grófum inn
í hól fyrir ofan bæinn, reftum upp, settum hurð fyrir, dyr móti
norðri, fyltum húsið með ís síðastl. vetur. Þegar voraði var svo
sjatnað, að koma mátti ílátum fyrir, við gerðum holur í fsinn
fyrir ílátin.
Jeg gét ekki hugsað mjer að vera án /skofans míns hjereftir.
Eyfirsk kona.
Þvottasápa.
A Iðnsýningunni á Akureyri í sumar var þvottasápa lrá Munka-
þverá í Eyjafirði. Sápa þessi liefur þótt gelast ágætlega vel, og
hafa því margir tekið upp sápusuðu Jtessa.
Sápunni fylgdi uppskrift, og þykir vel við eigandi, að birta hana
hjer öðrurn til eftirbreytni, þó sum af efnunum í sápunni sjeu
ekki auðfengin, má J)ó vera, að einhverjir búi svo vel, að Jrað sje
ekki til fyrirstöðu.
Þess er getið, að sápan sje sjerstaklega góð í suðuvatnið og J>egar
lagt er í bleyti. Verð er talið nálega 50 au. pundið.
15 1 vatn.
5 pd. fita.
3 pd. sódi.
11/2 pd. kalk (leskjað).
3 pelar af salti.
Helmingurinn af vatninu er látinn í pottinn og sódinn og kalkið.
Fitan er látin í, þegar fer að hilna.
Þetta er soðið í 4 tíma við hægan eld og vatninu (heitu) smá-
bætt í.-Þá er saltið látið í og sápan soðin li/2 tíma.
Þess má geta, að í sápuna má nota hvers kyns úrgangsfitu, sem
til fellur, svo sem fitu innan úr gærum, utan af vömbúm o. s. frv.
Kalkið hreinsar óhreinindi úr, og þau setjast á botninn.