Hlín - 01.01.1921, Side 31
Hlín
29
ekki trú á hinu, sem heyrst hefur, að íslendingar þyrftu
að gera sjer far um að glata þjóðerninu, svo þeir gætu
samlagast sem vera ber amerísku þjóðfjelagi. En það er
engin hætta, þetta mundu þeir ekki geta, því líklega
hafa þeir góðu menn rjett fyrir sjer, er segja, að þjúð-
erni yfirleitt sje ódrepandi jafnvel þó það taki inn eitur.
Pað er helg skylda allrar þjóðarinnar hjer heima, að
hjálpa þjóðarbrotinu vestra að halda við sig íslenskunni.
F*að er heldur ekki svo lítið brot, samanborið við heima-
fólkið, ef það eru milli 30 og 40 þúsundir.
En þetta tekst ekki, svo í lagi sje, nema með góðri
skólakenslu í íslenskum bókmentum að fornu og nýju
og sögu íslands. Þarna eiga austur-íslendingar að rjetta
hönd, þó það kosti eitthvað. Eiga líka löndum vestra
margt gott upp að unna. Pyrftu einnig að borga fyrir
gamlar syndir, t. d. þá grátlegu og grimmilegu björg-
unartilraun, þegar hreppsnefndir hjer á fyrstu vesturflutn-
ingsárum sendu frá sjer fátækar fjölskyldur án minstu
hjálpartækja, er þangað kom. Ekki þeim að þakka að úr
rættist, og ótaldar eru hörmungarnar, sem þetta fólk varð
að þola á frumbýlingsárunum.
Einn aðaltilgangur íslendingafjelagsins í N. Y., er að
leiðbeina ókunnugum íslendingum, nýkomnum að heim-
an. Utanáskrift fjelagsins er: Mr. O. G. Godmundson
Battin High School, Elizabeth, N. Y., en jeg skal leyfa
mjer að vísa til hr. kennara Steingríms Arasonar, Grund-
arstíg 3, Reykjavík, sem mundi fúslega gefa upplýsingar,
einnig gagnvart augnspítalanum og þær betri en jeg hef
getað gefið.
Nafn og utanáskrift spítalans er:
Manhattan Eye, Ear & Throat Hospital, 210 East 64th
Street, New York, U. S. A.
15. sept. 1921.
Ingibjörg R. fóbanncsdótir,
Árnesi við Akureyri.